Færsluflokkur: Bloggar

Flugstöðin: Ein stór allsherjar mismunun.

   Það verður að segja það um flugstöðina að hún er dæmi um eina stóra mismunun á öllum sviðum þvi miður !   Það á við um þetta dæmi og einnig reglur um kaup á afengi og tóbak þar m.a. og fl. Þetta allt er hinum venjulega borgara þessa lands sem heldur sig bara á skerinu gamla og lætur sér ferðalög lítið varða allt í óhag. Ef viðkomandi hefur áhuga á ferðalögum erlendis eða þarf að erindast þangað, þá getur hann (ef hann reykir, drekkur, borðar mikið sælgæti eða er raftækjaglaður með endemum o.s.frv.) niðurgreitt fargjaldið með kaupum á þessum "nauðsynjavörum" sínum í raun og veru !  Lausnin á þessu öllu er jú að fella sem mest af sköttum og gjöldum landsmanna á vörum og þjónustu innanlands niður. Það hefur þó verið unnið að þeim efnum nokkuð undanfarið og vonandi að menn haldi áfram á þeirri braut, þannig gerum við borgurunum kleift að versla hér með sanngjörnum hætti án þess að þurfa að leita út fyrir lögsögu þessa lands eða inná lokað verndarsvæði Fríhafnar.

 


mbl.is Fríhöfnin komin út fyrir efnið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Málið keyrt í gegn í "bakherbergjum" Ráðhússins".

   Engin áætlun til um hvað tekur við eftir lokun suðvestur brautar, gera líklega ráð fyrir að suðvestan "útsinningsáttin" sé liðin undir lok hér á landi !  Enda líka bara Norðanátt í kortunum á næstunni og því þarf ekki að hugsa þetta lengra að mati Borgaryfirvalda.


mbl.is Ræða lokun neyðarbrautar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mál sem þarf að skoða út frá ýmsum þáttum.

   Lítur vel út á pappírunum eins og má orða það.  En margt þarf að skoða í framhaldinu, Reykvikingar losna við flugvélahljóðin en Hafnfirðingarnir fá suðið frá vélunum í staðinn t.a.m.  Taka þarf tillit til aðstæðna varðandi ókyrrð frá fjallgarðinum í suðri og margt fleira, tekur mörg ár að skoða, en á meðan þarf völlurinn í Reykjavík að vera fullgildur fyrir allt flug allstaðar frá áfram. 


mbl.is Hvassahraun kemur best út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stöðugt verðlag kalli á hærri stýrivexti ?

   Þetta telur Seðlabankinn sé staðreynd, nú þegar búið er að semja um kjör fólks á almennum vinnumarkaði, (en verðbólgan þó enn sem komið er lág) og athyglisvert að hún boðar miklar hækkanir á vöxtum næstu mánuðina og gefur því tóninn af því sem koma skal í þessum peningageymslubanka landsmanna. Það eina sem Ríkisstjórnin virðist geta gert með þau auðævi sem hún fær frá föllnu bönkunum við uppgjör þeirra er að "brenna" blessuðu aurana svo Seðlabankinn komist ekki á enn meira flug með stýrivaxtastefnu sína næstu misserin, svo virðist því að þessi Banki muni hafa aftur mikil völd í þjóðfélaginu okkar rétt eins og hér um árið þegar hann stjórnaði meira eða minna allri umræðunni um efnahagsmálin um og eftir hrunið svokallaða !  Nú kemst Seðlabankinn aftur á þann stall sem hann telur sig eiga heima á !


mbl.is Hækka stýrivexti bankans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

THE TERMINAL.

   Hún hefur fengið innblásturinn fyrir þessu frá myndinni góðu með Tom Hanks án efa.

 

 


mbl.is Bjó í Leifsstöð í viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bikarmeistarar.

  Annar titill af þremur í hús hjá Barcelona.  Enn og aftur Messi ótrúlegur og metin slegin áfram á Spáni.  


mbl.is Tveir titlar í höfn hjá Barcelona
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland - Bandaríkin.

   Mikilvægt að halda góðu sambandi við þessa þjóð í vestri og mætti bæta þau enn betur með því að liðka til í tollamálum t.a.m. og í auknu samstarfi í gegnum NATO og fl. Mikið að gerast þó í þessu samstarfi eins og t.d. í ferðamálum sem eru orðin mikilvægur hluti í efnahagskerfi okkar með aukinni komu fólks frá USA.  


mbl.is Gunnar Bragi hitti John Kerry
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Martröð Þingforsetans.

   Málþófstímabilið er hafið á þingi og virðist sem það sé orðið árlegur viðburður eins og inflúensan sem herjar á landsmenn upp úr áramótum ár hvert !  Engin bóluefni virðast til gegn þessum vágesti !


mbl.is Setji ný met í málþófi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn áfram með í ráðum !

   Ísland er ekki laust við AGS.  Greinilegt að AGS hefur enn mikil áhrif innan Seðlabankans og í Efnahagsráðuneyti landsins.


mbl.is AGS: Launahækkanir ógna stöðugleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ívar Andersen
Ívar Andersen
Höfundur er verslunarmaður.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Topplistinn.

- G:\Carpenters 3

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband