Færsluflokkur: Dægurmál

Frá mótmælum til kærleika!

   Vetrarhátíð verður haldin í kjölfar mótmæla Harðar Torfa og félaga á Austurvelli, þ.e. ef þeir halda uppteknum hætti sem fyrr.  Þeim veitir ekki af á þessum síðustu og verstu...  að fá smá kærleika, hlýju og samkennd og fl. eftir allt sem á undan er gengið.  Þetta er vel til fundið hjá Höfuðborgarstofu að efna til kærleikshátíðar, og efast ég ekki um að fólk úr öllum flokkum og samtökum af ýmsu tagi munu safnast saman við Austurvöll  til að samgleðjast og faðmast og reyna finna fyrir samkennd hvert hjá öðru og aldrei að vita nema öll þessi hlýja og samkennd muni bera einhvern ávöxt að lokum?!  Nú er tíminn, kærleiksbörn, til að sameinast!
mbl.is Senda jákvæða strauma frá Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öruggur útisigur.

  Gott að vita að eitthvað jákvætt er að gerast hjá okkur, útisigur í fótboltanum er alltaf kærkominn, sérstaklega við það ástand sem við búum við í dag þ.e. neikvæðar fréttir á flestum sviðum þjóðlífsins. Vonandi að Landsliðið haldi sig á réttri braut áfram því nú veitir ekki af að sýna umheiminum að við getum a.m.k.  staðið í lappirnar á sviði fótboltans.
mbl.is Öruggur sigur Íslands á Liechtenstein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannanir eru tímaeyðsla þessa dagana.

   Ekkert er að marka skoðanakannanir þessa dagana.  Fólk er mjög óákveðið og það lítur út fyrir að svo verði næstu vikurnar!  Ómögulegt að segja til um fylgi flokka, enda ný stjórn komin og fólk veltir mikið fyrir sér hvað sé framundan, óvissan er mikil.  Það á eftir að koma í ljós hver áhrifin verða af þeim mörgu skyndiákvörðunum sem nú er verið að taka, muni hafa á efnahag þjóðarinnar og afleiðingar til lengri tíma.  Hinar fjölmörgu "björgunaraðgerðir" sem nú eru í gangi gætu þýtt bættan hag til skemmri tíma en verri til lengri, ómögulegt að spá nokkru um framtíðina í þessum efnum, eitt er víst: fólk er varkárt þessa dagana!
mbl.is Sjálfstæðisflokkur stærstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er maðurinn?

   Nú spyrja margir sem lesa þessa frétt: Hver er maðurinn?  Þessi maður fór bara alveg framhjá manni í hinni pólitísku umræðu síðustu misserin!  Nú birtist hann allt í einu eins og "týndi sonurinn" hjá Samfylkingunni og er dúkkaður upp sem Forseti Alþingis!!  Greinilegt að það á að ýta honum fram í sviðsljósið, annað dugar ekki þar sem hann sjálfur lítið viljað láta á sér bera síðan hann komst á þing.  Nú verður hann í "mynd" alla daga meðan þingið situr og ekki efast maður um að hann mun láta til sín taka í málum af ýmsu tagi!  Það er nú reyndar svo að embætti Þingforseta hefur yfirleitt verið falið mönnum sem er á leiðinni að hætta á þingi og yfirleitt þeim elstu sem þar starfa og því veltir maður fyrir sér afhverju Samfylking valdi ekki Ellert B. schram í embættið?

Hver er maðurinn?

   Nú spyrja margir sem lesa þessa frétt: Hver er maðurinn?  Þessi maður fór bara alveg framhjá manni í hinni pólitísku umræðu síðustu misserin!  Nú birtist hann allt í einu eins og "týndi sonurinn" hjá Samfylkingunni og er dúkkaður upp sem Forseti Alþingis!!  Greinilegt að það á að ýta honum fram í sviðsljósið, annað dugar ekki þar sem hann sjálfur lítið viljað láta á sér bera síðan hann komst á þing.  Nú verður hann í "mynd" alla daga meðan þingið situr og ekki efast maður um að hann mun láta til sín taka í málum af ýmsu tagi!  Það er nú reyndar svo að embætti Þingforseta hefur yfirleitt verið falið mönnum sem er á leiðinni að hætta á þingi og yfirleitt þeim elstu sem þar starfa og því veltir maður fyrir sér afhverju Samfylking valdi ekki Ellert B. schram í embættið?
mbl.is Guðbjartur verður forseti Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr Ráðherra Bankamála.

   Þá er hin nýja byltingarstjórn búin að ákveða með Ráðherraembætti sín.  Enginn fannst innan flokkanna til að fara með mál bankanna og fjármálaeftirlitsins.  Leita þurfti til Háskóla íslands til að fylla upp í Ráðherrakvótann.  Mun hin nýja stjórn leita eftir "akademískum" lausnum á þeim vanda sem að þjóðinni steðjar.  Líklega verður hinum nýja Viðskiptaráðherra gert að gera hinum sitjandi bankastjórum í Seðlabankanum eins lífið leitt og hægt er, og kannski með aðstoð hins nýja Dómsmálaráðherra sér til halds og trausts!  Samfylking og VG. munu samkv. frétt stöðvar 2. ætla að kynna hina nýju stjórn á Austurvelli þar sem byltingarsinnar stóðu áður og ausuðu svívirðingum yfir landsfeðurna.  Nú mun Samfylkingin standa þar og taka við heillaóskum frá hinum sömu aðilum...
mbl.is Gylfi tók ráðherraboði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnarskipti á föstudag!

  Nú virðist sem talað sé um að stjórnarskiptin fari fram á föstudaginn.  Talað um að Jóhanna verði Forsætisráðherra og athyglisvert er að það eina sem um er rætt í fjölmiðlum um hana er það merkilega atriði að hún er kvenmaður og það samkynhneygður, allt annað virðist aukaatriði í umræðunni um Forsætisráðherraembættið.  Hvað hún fái áorkað í embættinu virðist lítið áhugavert, miðað við það sem maður les og heyrir í miðlum.  En greinilegt er að stjórnarmynduninn ætlar að taka sinn tíma og allavega getum við andað "létt" á meðan EKKERT gerist!!

Samfylkingin uppfyllir óskir mótmælenda.

  Hverjir fara með völdin?  Jú svo virðist sem völdin séu í höndum nokkurra þúsunda einstaklinga sem mæta á Austurvöll helgi eftir helgi til að krefjast afsagnar Ríkisstjórnar, og svo virðist sem Samfylking ætli að uppfylla óskir þessa fólks.  Svo virðist sem restin af þjóðinni muni ekkert fá að segja um málið. Restin af þjóðinni fylgist bara með, hinn þögli meirihluti þjóðar fær ekkert um þetta að segja?  Greinilega er hart barist um atkvæðin á vinstri væng stjórnmálanna.  Það hefur verið um það rætt að ef félög eins og Heimdallur Sjálfstæðisflokksins væri með samkomur af þessu tagi þar sem meðlimir eru um 5000. þá væri líklega umfjöllunin með öðrum hætti.  Líklega myndi Ríkisútvarpið allavega ekki vera á staðnum helgi eftir helgi til að flytja fréttir af málum.  Ef svo fer fram sem horfir, þá þurfum við varla að mæta á kjörstaði í framtíðinni, því ákvarðanir verða alla teknar á Austurvelli og af þeim sem láta mest í sér heyra og eiga stærstu pottana til að berja í. 
mbl.is Upphaf á kosningabaráttunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erfiðir tímar framundan.

  Ljost er að erfiðir tímar eru framundan.  Forsætisráðherra talar um að ekkert megi fara úrskeiðis og halda þurfi dampi.  Það er jú erfitt að spá hvað skeður á næstunni, allir virðast vera fara yfirum sem eitthvað tjá sig um stjórnmál þessa dagana.  Og kannski er það vandinn sem framundan er, þ.e. menn rjúka til og koma fram með skyndilausnir sem kannski geta gert illt verra þegar til lengri tíma er litið.  Athyglisvert að heyra í öllum stjórnmálafræðingunum sem nú hoppa fram enn eina ferðina og skýra ástandið frá sínum sjónarhóli, almennt telja þeir að stjórninni sé vart hugað líf og segja í raun að hún sé dauðadæmd.  Heldur finnst manni sem þessir fræðingar tali út í vindinn þessa dagana, en reyndar verður að segja það þeim til varnar, að þeir lifa jú á því að tjá sig um þessi mál almennt, þótt þeir tali nú ætíð á neikvæðu nótunum oftast nær.
mbl.is Geir: Má ekki missa dampinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RÚV sleppir af sér beislinu!

  Það eru breyttir tímar í Íslensku þjóðfélagi.  Loksins er tími rótleysingja og stjórnleysingja runninn upp.  Aldrei áður hafa hópar einstaklinga sem ekki virðast eiga sér fulltrúa á þingi haft eins mikil völd og nú er orðin raunin.  Einstaklingar og hópar ungs fólks hafa fengið "frelsi"  til að hella úr skálum reiði sinnar og fengið óáreittir að beina þeirri reiði gegn lögreglu og löggjafastofnunum landsins.  Með dyggum stuðningi Ríkisfjölmiðla, sérstaklega Ríkisútvarpinu hafa ákveðnir hópar fengið fríar umfjallanir og lýst hefur verið beint reglulega af fundum þessara hópa.  Nú vitum við að máttur fjölmiðla er mikill, en svo virðist sem Ríkismiðlarnir hafi sérstaklega tekið upp málstað þessa fólks.  Ekki bólar mikið á umfjöllun um lausnir á vandanum, heldur er hamrað endalaust á því að allt sé komið í þrot í þjóðfélaginu, þar er eingöngu leitað að sökudólgum og nóg er um sérfræðinga hjá RÚV til að leita til í þeim efnum.  Ansi lítið er um uppbyggilega umræðu í þessum miðli landsmanna.  Lausnarorðið hjá þessum opinbera miðli er "kreppa".  Á þessum miðli landsmanna eru menn greinilega komnir í stríðsham gegn ríkjandi stjórn.  Allt hlutleysi er fokið út í veður og vind á þessum miðli!  Eiginlega á maður erfitt með að sjá muninn á RÚV og Útvarpi SÖGU, efnistökin eru allavega svipuð.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ívar Andersen
Ívar Andersen
Höfundur er verslunarmaður.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Topplistinn.

- G:\Carpenters 3

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband