Rokkstjörnufögnuður!

Þegar maður hefur átt leið um Evrópu, þá hefur það komið manni oft á óvart hve fólk er latt með að skilja enskuna og oft hefur maður lent á fólki sem hefur bara yppt öxlum yfir því, þegar maður hefur reynt að spyrja fólk spurninga á förnum vegi!  Nú ber hinsvegar svo undir að Rokkstjörnupólitíkus heldur ræðu yfir hundruðum þúsunda manna samkv. frétt mbl. á ensku.  Pólitíkusinn sagði ýmislegt um sín stefnumál og fólk fagnaði að lokinni hverri setningu hans af mikilli innlifun og nánast sem móðursýki hefði gripið mannskapinn!  Efast nú samt að Þjóðverjarnir hafi skilið almennt hvað hann var að segja að mestu leyti, og þá sérstaklega með tilliti til þess fjölda sem þarna var.  Þjóðverjar eru nú reyndar frægir fyrir tryllast þegar svona "rokkstjörnur" byrtast enda mörg dæmi þess úr fortíðinni (enda frægir fyrir múgæsingar). Reyndar kemur fram að mikill fjöldi var af túristum og ungu fólki, enda virðist sem "Rokkstjarnan" nái vel til þess hóps fólks.  Það skyldi þó aldrei vera að þarna sé "ný stjarna" fædd.
mbl.is Obama tekið sem rokkstjörnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ívar Andersen
Ívar Andersen
Höfundur er verslunarmaður.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Topplistinn.

- G:\Carpenters 3

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband