Kemur svo sannarlega ekki á óvart!

    Kemur ekki á óvart að formenn stjórnarflokkanna þori ekki að mæta Davíð í Þættinum í kvöld, eins og ég ritaði í morgun þá gerði ég ekki ráð fyrir háttsettum stjórnarliðum í þáttinn í kvöld.  Sú Ríkisstjórn sem nú situr gerir allt til að kæfa niður þetta mál sem reynist greinilega samstarfinu þungt í skauti.     Á  meðan keyrir stjórnin í gegnum þingið ályktuninni um að ganga til viðræðna ESB um inngöngu, en þar þarf stjórnin á liðhlaupum úr öðrum flokkum að halda! Stjórnin þarf líka að reiða sig á liðhlaupa úr öðrum flokknum til að fá ICESAVE málinu framgegnt á þingi!  Ekki nema von að formenn flokkanna hlaupi í felur þegar ræða á málin fjölmiðlamenn (aðra en þá sem eru hliðhollir stjórninni eins og t.d. RÚV).
mbl.is Davíð í Málefninu í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er Davíð sem ekki þorir að mæta nema einn.  Á undanförnum árum  hefur ekki mætt nema þegar hann kemur fram einn.

Halldór Pálsson (IP-tala skráð) 13.7.2009 kl. 18:11

2 identicon

Nákvæmlega. Davíð þorir ekki að mæta neinum í viðtölum og hefur eflaust samið við þáttargerðarmenn þessa þáttar, sem btw er unninn í samvinnu við Morgunblaðið, um hvaða spurningar má ekki koma inn á.

Allavega kæmi mér það, vissulega skemmtilega, á óvart ef hann verður spurður út í allar staðreyndavillurnar sem Agnes tók á sig fyrir hann í Moggaviðtalinu. 

Halldóra (IP-tala skráð) 13.7.2009 kl. 18:56

3 Smámynd: Jón Bragi Sigurðsson

Ég sá líka alveg ljómandi skemmtilegt viðtal um daginn (sem tekið var gegnum miðil haustið 1945) Þar var rætt við mann sem kvaðst hafa verið uppi í Þýskalandi framundir miðbik tuttugustu aldar og heita Adolf (Hitler eða eitthvað svoleiðis í eftirnafn). Hann sagðist alla tíð hafa séð fyrir að heimstyrjöldin seinni myndi enda með ósköpum og í viðræðum sínum við Göring og Himmler hefði hann sagt á þá leið að "þið getið herjað og eyðilagt allt í Póllandi og Rússlandi en þið hafið ekkert leyfi til þess að eyðileggja Þýskaland kálfarnir ykkar"!

Samt hefði verið látið alveg fáránlega illa við sig og vondir menn hefðu sótt að sér með vopnum og reynt að flæma sig útúr einhverju seðlabankalíku vel steyptu byrgi þar sem honum fannst hann eiga svo vel heima og vera þjóð sinni til gagns og sóma þar sem hann sat...

Jón Bragi Sigurðsson, 13.7.2009 kl. 20:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ívar Andersen
Ívar Andersen
Höfundur er verslunarmaður.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 656

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Topplistinn.

- G:\Carpenters 3

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband