Færsluflokkur: Bloggar

Frumvarp með hraði!

   Nú er keyrt í gegnum þingið frumvarpi með hraði.  Slík vinnubrögð eru talin eðlileg af núverandi stjórn.  Menn eru greinilega fljótir að gleyma því þegar stjórnarandstaðan kvartaði í sífellu hér áður að verið væri að henda málum í gegn, vanhugsuðum og illa ræddum málum!  Nú gera vinstri flokkarnir einmitt það sem þeir hafa helst gagnrýnt í gegnum tíðina og það með enn meiri hraða, nánast keyrt í gegn með "hraðlest".  Athyglistvert þetta með Jóhönnu og það að hún skuli vinna að málum gegn eigin samvisku eins og það að virða sjálfstæði Seðlabankans.  Greinilega verið að gera hosur sínar grænar (eða rauðar)  fyrir kjósendum sínu.
mbl.is Hörð gagnrýni á seðlabankafrumvarp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meira um ályktun Starfsgreinas. gegn Hvalveiðum.

   Hún er undarleg þessi ályktun gegn Hvalveiðum sem Starfsgreinasambandið hefur ályktað um.  þar segir m.a.  Ferðaþjónustan er afar þýðingarmikil og vaxandi frumatvinnugrein á Íslandi, sem á í samkeppni við erlendan markað og þarf á jákvæðri ýmind að halda..os.frv.  En í næstu málsgrein segja þeir: Illa ígrundað að úthluta völdum einstaklingum hvalveiðileyfum til fimm ára með reglugerð á síðustu stundu, slikt sé óhæfa! En hvað eru menn að segja með þessu?  Jú, líklega það að Sambandið sé einfaldlega "fúlt" yfir því að fleiri skyldu ekki fá að veiða Hval en raun ber vitni, en tala samt um það fyrr í ályktuninni að þeir hafi "samúð" með Ferðaþjónustunni!!  Hvað eru menn þá að meina? Hefðu þeir viljað sjá fleiri fyrirtæki fá leyfi til veiða Hvalinn og þá víðar um landið?  Hvernig færi slíkt saman við ferðaþjónustuna?  Er ekki betra að hafa þetta skipulagt í höndum fárra manna með aðstöðu á fáum stöðum til þess einmitt að trufla ekki Hvalaskoðunarbransann.   

 


Fullkomnlega hárrétt ákvörðun hjá Einari kr. Guðfinnssyni.

   Og Einar Kr. hefur rökin sín megin í þessum málum.  Hvalveiðar og Hvalaskoðun geta að sjálfsögðu farið vel saman enda þessir hlutir gengið vonum framar síðustu sumur!  Merkilegt er þó þegar Formenn starfsgreinasambanda taka sig saman og álykta gegn þessum aðgerðum sem eiga að vera í þágu þjóðarinnar allrar.  Þarna taka formennirnir þrönga hagsmuni fram yfir hagsmuni heildarinnar.
mbl.is Gagnrýna ákvörðun Einars Kr.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannanir eru tímaeyðsla þessa dagana.

   Ekkert er að marka skoðanakannanir þessa dagana.  Fólk er mjög óákveðið og það lítur út fyrir að svo verði næstu vikurnar!  Ómögulegt að segja til um fylgi flokka, enda ný stjórn komin og fólk veltir mikið fyrir sér hvað sé framundan, óvissan er mikil.  Það á eftir að koma í ljós hver áhrifin verða af þeim mörgu skyndiákvörðunum sem nú er verið að taka, muni hafa á efnahag þjóðarinnar og afleiðingar til lengri tíma.  Hinar fjölmörgu "björgunaraðgerðir" sem nú eru í gangi gætu þýtt bættan hag til skemmri tíma en verri til lengri, ómögulegt að spá nokkru um framtíðina í þessum efnum, eitt er víst: fólk er varkárt þessa dagana!
mbl.is Sjálfstæðisflokkur stærstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Wall Street Journal.

   Hannes Hólmsteinn tjáir sig á vef Wall Street Journal.  Hann segir þar að láni frá IMF. hafi verið þröngvað upp á okkur af kröfu IMF og Evrópusambandsins, eftir að bankarnir hrundu hér í Október,  til að við gætum uppfyllt greiðslukröfur frá erlendum innlánseigendum og þannig steypt Íslenskum borgurum í stórskuldir.  Í rauninni er Hannes bara að lýsa þróun mála hér á landi  fyrir erlendum lesendum blaðsins.  Það er nú ekki svo slæmt að einvher taki að sér að útskýra málin fyrir umheiminum, okkur veitir nú ekki af að reyna rétta stöðu okkar á alþjóðavísu og koma hlutunum rétt til skila hvað varðar útskýringar á hruninu mikla sem hér varð.  Ekki laust við að maður sjái léttan húmor að hætti Hannesar bregða við í þessari grein!
mbl.is Hannes Hólmsteinn: Óvinir Davíðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna segir "skák".

   Nú er boltinn hjá Seðlabankastjórum.   Spurning hvaða varnarleik bankastjórar leika, segja þeir skák  líka eða gefa þeir leikinn?  Það virðist þó verða erfitt fyrir Jóhönnu að segja skák og mát, því það mun án efa verða kostnaðarsamt fyrir frúna í forsætisráðuneytinu.  En ekki verður það nú svo sem áhyggjuefni forsætisráðherrans enda alvön því að fórna miklum fjármunum úr Ríkiskassanum og fer létt með.
mbl.is Seðlabankastjórar víki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú skal tekið til hendinni...

   Nú rignir inn ábendingum, kærum og fyrirspurnum til þessa nýja saksóknara sem á að rannsaka hvað varð af öllum aurum landsmanna.  Eins gott að hinn nýja rannsóknarstofnum standi nú undir nafni og verði eitthvað ágengt í þessum efnum, því allt hefur "klikkað" hingað til.   Við vonum að "inspector clouso" og hans menn nái skjótum og góðum árangri í að fletta ofan af öllu útrásargenginu og endurheimta eitthvað af því "góssi " sem horfið hefur úr innviðum banka og fyrirtækja á undanförnum misserum.  Og í kjölfarið munu síðan sökudólgarnir fá sín maklegu málagjöld í hinu illræmda íslenska dómskerfi í kjölfarið...
mbl.is Bankahrunsmál til sérstaks saksóknara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byltingarstjórnin vekur athygli!

   Það er eðlilegt að þessi nýja stjórn veki athygli um allan heim og ekki síst í Kína, enda sjá menn þar nýja bandamenn í pólitíkinni, og kannski veitir ekki bara af fyrir okkur, þar sem við erum búin að missa þá flesta hér á Vesturlöndum!!!
mbl.is Stjórnarskiptin vekja athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er maðurinn?

   Nú spyrja margir sem lesa þessa frétt: Hver er maðurinn?  Þessi maður fór bara alveg framhjá manni í hinni pólitísku umræðu síðustu misserin!  Nú birtist hann allt í einu eins og "týndi sonurinn" hjá Samfylkingunni og er dúkkaður upp sem Forseti Alþingis!!  Greinilegt að það á að ýta honum fram í sviðsljósið, annað dugar ekki þar sem hann sjálfur lítið viljað láta á sér bera síðan hann komst á þing.  Nú verður hann í "mynd" alla daga meðan þingið situr og ekki efast maður um að hann mun láta til sín taka í málum af ýmsu tagi!  Það er nú reyndar svo að embætti Þingforseta hefur yfirleitt verið falið mönnum sem er á leiðinni að hætta á þingi og yfirleitt þeim elstu sem þar starfa og því veltir maður fyrir sér afhverju Samfylking valdi ekki Ellert B. schram í embættið?

Hver er maðurinn?

   Nú spyrja margir sem lesa þessa frétt: Hver er maðurinn?  Þessi maður fór bara alveg framhjá manni í hinni pólitísku umræðu síðustu misserin!  Nú birtist hann allt í einu eins og "týndi sonurinn" hjá Samfylkingunni og er dúkkaður upp sem Forseti Alþingis!!  Greinilegt að það á að ýta honum fram í sviðsljósið, annað dugar ekki þar sem hann sjálfur lítið viljað láta á sér bera síðan hann komst á þing.  Nú verður hann í "mynd" alla daga meðan þingið situr og ekki efast maður um að hann mun láta til sín taka í málum af ýmsu tagi!  Það er nú reyndar svo að embætti Þingforseta hefur yfirleitt verið falið mönnum sem er á leiðinni að hætta á þingi og yfirleitt þeim elstu sem þar starfa og því veltir maður fyrir sér afhverju Samfylking valdi ekki Ellert B. schram í embættið?
mbl.is Guðbjartur verður forseti Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ívar Andersen
Ívar Andersen
Höfundur er verslunarmaður.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Topplistinn.

- G:\Carpenters 3

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband