11.1.2008 | 14:45
Umhverfissinnar seint ánægðir!
Það er ekki að spyrja að umhverfissinnum, alltaf finna þeir agnúa á öllum nýjungum, nú eru það smábílar sem þeir ráðast gegn. Smábílar eiga að koma í stað bifhjóla sem eru mörg í henni Asíu. Einhvern tíma hefðu umhverfissinnar fagnað nýjungum sem þessum, en nú segja þeir stopp! Það er ekki sama hvar smábílarnir eru settir niður að þeirra mati, hin fátæki almúgi í þessum löndum á ekki að fá tækifæri að ferðast með öruggari hætti en þeir hafa gert hingað til, heldur vilja umhverfissinnar að þetta fátæka fólk ferðist áfram á skellinöðrum og öðru þvílíku. Umferðin er vandamál þarna að mati umhverfissinna. En mætti ekki halda því fram að meiri áhersla verði lögð á að laga þessi umferðamál þá í framtíðinni með aukinni smábílaeign! Verður þetta ekki til þess að stjórnvöld þarna fái aukinn þrýsting í þeim efnum að laga samgöngukerfið, sem er nú víst ekki gott þarna? Ætli yfirvöld liggi ekki á því að gera nokkuð vegna lítils þrýstings frá skellinöðrueigendum og fleirum sem dæmi. Hvenær koma annars þessir bílar til Íslands...
Ekki hrifnir af ódýrum bíl | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Stjórnmál og samfélag, Tölvur og tækni, Vísindi og fræði | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 698
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég leyfi mér að efast um að hitnun jarðar sé vegna manna en að einn miljarður manna fari nú almennt að nota bíla hlýtur að hafa einhver áhrif og full ástæða til að hugsa vel út í þær afleiðingar þótt ekki væri nema mengun í borgum.
Mofi, 11.1.2008 kl. 17:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.