19.7.2010 | 00:24
Hugurinn ber mann bara hálfa leið!
Eins og segir einvherstaðar, og það á vel við KR liðið þetta árið! Kannski er það góða veðrið, menn bara uppteknir af því að njóta veðurblíðunnar. Og kannski reddast þetta bara! Ef liðið forðast fall þá geta menn verið sáttir! eða svo virðist allavega andinn vera í kringum liðið þessa dagana. KR liðið hefur verið heppið með mótherja í Bikarnum hingað til og náð að "hanga" inni í þeirri keppni. Evrópudraumurinn er búinn þetta árið en líkur á að "okkar" menn geti þó haldið áfram að svífa um í draumalandinu hér uppi á "skerinu". Andstæðingar okkar í deildinni eru allavega vel sáttir með þá stöðu mála þetta sumarið!
![]() |
Áttuðum okkur ekki á því að Haukar spila ágætis fótbolta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.7.2010 | 11:40
Spurningakeppni framhaldsskólanna verður jafnari!
Það er náttúrulega tilgangurinn með þessari aðgerð!
![]() |
Nían nægði ekki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2010 | 21:02
"Besta" lagið!
...og það er ekkert grín á bak við það!!
![]() |
Íslenska lagið í úrslit |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.5.2010 | 20:21
Og nú syngjum við Barcelona!
Og að sjálfsögðu sendi ég fyrir hönd Íslensku þjóðarinnar heillaóskir og kæra kveðju suður til Barcelona og óska Börsungum til hamingju með enn einn Spánartitilinn.
![]() |
Barcelona varði meistaratitilinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.5.2010 | 21:27
Vörnin hjá KR. leystist upp í lokin!
Eftir fyrstu skptinguna hjá Kr.ingum sá maður að hlutir fóru að ganga illa. Menn algjörlega sofandi á verðinum og töldu að þetta væri komið! En sá hlær best sem síðast hlær og það sannaðist í þessum leik. Afspyrnu slakir Haukamenn hirtu eitt stig á nokkrum mínútum í seinni hálfleik. KRingar verða að læra að halda vöku út allann leikinn, vonandi að þetta verði þeim víti til varnaðar fyrir næstu leiki!! En maður segir nú samt ÁFRAM KR!!
![]() |
Haukar jöfnuðu metin í Vesturbænum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.5.2010 | 23:37
Sammála um að vera ósammála áfram!
Greinilegt að Ríkisstjórnin hangir saman á því skondna samkomulagi milli flokka um að vera sammála um að hanga áfram á ósamkomulaginu! Nokkuð ljóst að Vinstri Grænir vilja ekki gangast við tillögum Samfylkingarinnar varðandi breytingar á Ráðuneytum. Aðgerðarleysi og ráðaleysi þessarar Ríkisstjórnar hefur greinilega kristallast vel á þessum fundi í kvöld. Ekkert nýtt að frétta frekar en fyrri daginn og þjóðin látin reka áfram undan vindi.
![]() |
Breytingar ræddar áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2010 | 18:09
Góð byrjun, en...
Kr.ingar fara vel af stað, en leikurinn var þó ekki sannfærandi af þeirra hálfu, vonandi að menn hressist í næstu leikjum á Íslandsmótinu. Áfram KR.
![]() |
KR Lengjubikarmeistari með naumindum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.4.2010 | 09:46
Stjórnarflokkana skorti áræði til ákvarðana.
Ljóst er að stjórnarflokkarnir á þessum tíma voru alltof svifaseinir til ákvarðana á þessum tíma. Það átti að gera mönnum strax ljóst að ábyrgðin væri innistæðueigendanna en ekki í íslenskir skattborgarar, eins og menn hafa nú loksins áttað sig á!
![]() |
Vildu refsa Íslendingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.4.2010 | 22:06
Í kjölfar skýrslu um Bankahrun.
Nú stendur yfir þegar þetta er skrifað í ljósvakamiðli landsmanna umræður um skýrslu vegna Bankahrunið. Margt athyglisvert ber þar á góma og athyglisvert að allir bera af sér sakir en játa samt sekt á sama tíma, varðandi það að hafa verið viðriðnir ákveðna atburði sem mönnum í dag þykir hafa verið saknæmir eða siðlausir! Ljóst er að menn fóru geist á þessum góðæristímum, og meira að segja fjölmiðlamenn sjálfir tóku þátt í á fullu, en ekki fer þó mikið fyrir þeirri umræðu í ljósvakamiðlum, skiljanlega. Sjálfsgagnrýnin er látin liggja milli hluta, svona rétt á meðan hamrað er á stálinu. Athygli vekur í öllu þessu sú umræða sem fram fór síðustu daga fyrir opinberun þessarar skýrslu, en það voru ummæli fjölmiðlamanna um að óeirðir gætu brotist út og fólk hlaupið út á götur með potta og pönnur að vopni og löggæslumenn myndu geta átt slæma daga framundan úti við Austurvöll. Ekkert hefur þó borið á slíku, nema þó að nokkrir aðilar hafa komið þangað niðureftir til að leggja fram bíl og húslykla fyrir framan Alþingishúsið. En þetta virðast veru einu mótmælin sem orðið hafa og Lögreglan getur því andað rólega í kvöld. Þetta á sér þó skýringar sem liggja í augum uppi af þeim sem fylgst hafa með pólitík undanfarin misseri og skýringin: jú, Vinstri grænir sitja nú í Ríkisstjórn, svo einfalt er það og því er rólegt í bænum. Vinstri grænir þekkja sitt fólk og hafa greinilega hemil á órólegu deildinni í þeim flokki! Á meðan þeir sitja í Ríkisstjórn verður hinn þögli meirihluti að sætta sig við aðgerðarleysi í málum heimilanna og bíða þess sem verða vill, á meðan þjóðarskútan siglir hægt og bítandi áfram með gat á skrokknum og áhöfnin þarf að hafa sig alla við að halda sjó! Auknar álögur á almenning og aðgerðarleysi í atvinnumálum ásamt áframhaldandi þennsla hjá Ríkinu (þar sem nú er orðið hvað vinsælast að starfa hjá), er aðal prinsip þessarar stjórnar. Og athugið þetta: Fyrst voru það Bankarnir sem voru "étnir" innan frá, en nú er það Ríkið sjálft sem verður "étið" innanfrá með aðstoð spilltra stjórnmálamanna, þeirra sömu og predikað hafa hvað mest gegn spillingu á síðustu árum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.4.2010 | 16:19
Og hvað svo?
Nú er skýrslan komin sem allir hafa beðið eftir. En hvað svo? Aðalhluti skýrslunnar lendir í geymslu til næstu áratuga og restin er það sem allir hafa vitað fyrir. Við fyrstu sýn virðist þetta líta út sem úttekt fyrir Ríkið til að vinna úr. Hugsanlega verður skýrslan til þess að menn þurfi að breyta einhverjum lögum í framhaldinu til að koma í veg fyrir álíka kreppu og þjóðin lenti í ásamt öðrum þjóðum þessa heims. Búast má við að Saksóknaraembætti muni fá eitthvað til að moða úr út úr þessari skýrslu og framundan er hugsanlega mikil "vertíð" hjá lögfræðiskrifstofum og fleirum í þeim geira, vonandi að allt þetta muni koma vel út að lokum fyrir borgara þessa lands, en við fylgjumst áfram með...
![]() |
Skýrslan kom þjóðinni á óvart |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar