Ekki neitt nýtt af nálinni.

  Það er alvanalegt að fólk flytjist á milli í atvinnuleit, þannig er það alltaf þegar þrengir að.  Þess vegna er bráðnauðsynlegt að menn nái að vinna í málunum til að leysa vandann hér á landi sem fyrst.  En vandinn er sá sami annarstaðar á vesturlöndum.  Það er brýnt að fyrirtæki og einstaklingar sjái fram á vaxtalækkanir sem fyrst hvað sem líður kröfum alþjóðagjaldeyrissjóðsins í þeim efnum.  Stýrivextir hljóta að fara lækkandi nú á næstunni, enda viðskiptajöfnuður orðinn mjög hagstæður nú þegar og útlit fyrir að svo verði áfram næstu mánuði og jafnvel misseri.  Vonandi að þessar pólitísku þrengingar skemmi ekki fyrir því að við höldum haus í þeirri vinnu sem framundan er.
mbl.is Tvö til þrjú þúsund flytja út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsókn grípur tækifærið!

  Þá er framsókn komin í slaginn og býður fram minnihlutastuðning.  Formaðurinn sér þarna tækifæri á að auglýsa sig fyrir næstu kosningar, hvenær sem þær verða.  Spurning hvort þetta útspil frammara nægi til að styrkja flokkinn til framtíðar?  Spurning hvað hinum reyndari þingmönnum framsóknar finnist um þetta uppátæki sem hlýtur að vera sett fram af hinni nýju forystu flokksins.
mbl.is Vill verja minnihlutastjórn falli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alltaf fjör í miðbænum.

  Það ríkir carnival stemming í miðbænum þessa stundina.  Kveikt er á báli og Oslóartréið brennt,  sem er svo sem hið besta mál, þá þarf ekki að flytja það til förgunar.  Greinilegt að brennan er í boði lögreglu og slökkviliðs borgarinnar, enda gerir hún lítið til að blanda sér í stuðið sem þarna er. 
mbl.is Jólatréð brennt á bálinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr forseti Bandaríkjanna.

  Þá er Barack Obama tekinn við sem forseti Bandaríkjanna.  Hann tekur við á erfiðum tímum í Efnahagsmálum heimsins.  Forsetinn fer með yfir 80% stuðning þjóðarinnar við upphaf valdatíðar sinnar samkvæmt könnunum.  Þetta er þó ekki einstakt í sögunni því minna má á að Ronald Reagan hafði svipaðan stuðning þegar hann tók við embætti á sínum tíma!  Reagan tókst að standa undir væntingum á sínum tíma og vonandi verður það sama uppi á teningnum hvað Obama varðar, fólk trúir því að betri tímar séu framundan og því verður athyglisvert að fylgjast með hvernig hinum unga forseta tekst til í embætti.  Nú þegar Bush hverfur úr embætti, þá verður athyglisvert að fylgjast með hvernig sagan mun dæma hann þegar fram líða stundir!  Ég hef nokkra trú á því að hans verði minnst sem þess manns sem braut upp herör gegn hryðjuverkum í heiminum m.a. og sýndi að ekki væri hægt að ráðast gegn lýðræði í heiminum með skæruhernaði eða öðrum hermdarverkum, eða hvaða nöfnum sem þau nefndust.  Allavega er búið að tryggja að ekki verður ráðist gegn Bandaríkjunum með þeim hætti sem þekkist í öðrum heimsálfum, það er eitt sem búið er að tryggja!
mbl.is Obama: „Við erum reiðubúin að leiða á ný“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinstri grænir fara hamförum á Alþingi!

  Mikil læti hafa verið innan sem utan Alþingis við upphaf fyrsta þingfundar Alþingis.  Vinstri grænir hafa farið hamförum í fyrirspurnartíma þingsins. Erfitt að sjá hvort lætin hafa verið meiri í þeim eða mótmælendum fyrir utan húsið.  Athyglisvert að fylgjast með þessu ferli öllu í ljósvakamiðlinum góða.  Og svo koma framsóknarþingmenn og bæta um betur með "blótsyrðum" á Alþingi.  Greinilegt er að menn eru sárir yfir að komast ekki til áhrifa þegar byrinn er með þeim í könnunum, enda veit stjórnarandstaðan það að ef ekki næst sá árangur hjá þeim nú á næstunni að fella Ríkisstjórnina, þá er hætta á að allur vindur verði úr "blöðrunni" þegar almenningur sér að stjórnarandstaðan hefur lítið meira fram að færa en endalausa gagnrýni með tilheyrandi hávaða, fremur en "lausnir" á efnahagsvandanum.
mbl.is Piparúða beitt við þinghúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skoðanafrelsi barna.

   Eðlilega eiga börn rétt á að taka þátt í pólitískum umræðum.  (Umboðsmaður) segir að aldrei eigi að nota börn til að koma skoðunum annarra á framfæri, en það er nú samt  mjög algengt í gegnum leikhús, auglýsingar, bíómyndir og fl. Börn eru einfaldlega sífellt að koma skoðunum annarra á framfæri, þannig er það bara.  Í tilfelli þessarar stúlku þá man ég ekki betur einmitt að hún hefði sagt sjálf í viðtali að hún hefði fengið hjálp við að semja ræðuna hjá "pabba" sínum, sem er svo sem bara eðlilegt, en sýnir þó alltaf að fullorðnir hafa sífellt áhrif á börn almennt, það eru engin ný vísindi í þeim efnum...
mbl.is Eiga að fá tækifæri til að tjá sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikilvægt að viðræður gangi hratt.

  Nú eru viðræður um kjarasamninga hafnar, mikilvægt að þær gangi hratt fyrir sig.  Velferðar og Skattamál verða án efa ofarlega á baugi í viðræðum.  Mikilvægt er að komi verði í veg fyrir skattahækkanir hjá Ríki og Sveit á næstunni þar sem slíkar hækkanir koma hart niður á Launþegum almennt, lán hækka vegna hækkunar vísitölu og verðbólga helst há hér á landi áfram.  Besta kjarabótin er án efa að koma í veg fyrir víxlverkanir á hækkunum hins opinbera og verðlags almennt.
mbl.is Viðræður hafnar um endurnýjun kjarasamninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landsfundur: Margt meira heldur en ESB.

  Landsfundur Sjálfstæðisflokks mun vonandi ekki snúast um ESB eingöngu, heldur um hvernig eigi almennt að verja kjör landsmanna og hag þjóðarinnar almennt á næstu misserum.  Evrópuumræðan á eingöngu að vera einn þáttur af mörgum sem taka á fyrir á landsfundi flokksinns.  Vonandi mun Samfylkingin ekki eiga marga fulltrúa á fundi flokksins í lok mánaðarins, en það hljómar í umræðunni eins og Samfylking sé að undirbúa flokksfundinn en ekki Sjálfstæðismenn sjálfir.  Það þarf lausnir á Efnahagskreppunni hér en ekki "spekúlasjónir" um framtíðina með Evrópu á næstu árum.  Reynum að leysa vandann hér á landi, t.d. hvort við þurfum annan gjaldmiðil sem dæmi og hvernig á að verja hag launþegafólks í þessu landi á næstu misserum.  Ljóst er að Samfylking hefur engan áhuga á þeim umræðum, hún horfir eingöngu til þess að komast undir "pilsufaldinn" á Evrópusambandinu.
mbl.is „Brygðist sögulegu hlutverki sínu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur ekki á óvart.

   Þessi könnun Daily Telegraph kemur ekki á óvart, Bretar hræðast það greinilega að missa öll völd á pundinu sínu, og það þrátt fyrir fall á pundinu undanfarið.  Þeir vilja fara hægt í þessum málum og vilja sjá hvernig Evrópusambandið þróast á næstu árum, þeir trúa greinilega ekki nóg á samstöðuna í sambandinu til lengri tíma litið, enda eðlilegt í ljósi sögunnar.
mbl.is Bretar vilja snúa baki við ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spaugstofan.

  Endanlega hefur Spaugstofan misst trúverðugleika sinn.  Í þættinum er reynt að gera grín að Ríkisstjórninni  en allt sem þar kemur fram missir marks.  Ekkert samhengi í gríninu hjá höfundum þessa þátta.  Hraðsuðan er algjör, og þessi þáttur sem fyrr á árum átti að ná til fólks á öllum aldri er orðinn að einhverskonar "hatursþætti" þar sem á vissan hátt er lýst stuðningi við skemmdarverk og yfirgang í mótmælum lítils hóps fólks, s.b. þetta með "álsíldina".  Þar er lítið gert úr skemmdum og truflunum er urðu í þættinum Kryddsíld. Það er nú allt í lagi að gera grín að slíku, en það var þó alveg ljóst að þónokkrar skemmdir voru framdar þann dag við gerð þess þáttar! Þótt menn séu nú almennt ekkert hrifnir af þessum eigendum 365. miðla, þá er nú engin ástæða fyrir Spaugstofuna að taka afstöðu með "skemmdarverkum" eins og hún gerði "óbeint" í þættinum með því að "kasta" því fram að litlir og ómerkilegir hlutir hefðu eingöngu skemmst eins og kaplar og sérvéttur t.a.m.  Spaugstofan virðist meir og meir vera færast inn á það að vera lýsa skoðunum ákveðna manna er framleiða þessa "sketcha" svokallaða.  Áramótaskaupið  var t.a.m. alveg frábærlega vel heppnað.  Spaugstofan heldur í sínar vinsældir samkv. könnunum, kannski vegna þess að þeir eru á Laugardagskvöldum, þegar flestir horfa á!  Prófum að færa þáttinn yfir á Mánundagskvöld og skoðum hverjar vinsældirnar verða þá!

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ívar Andersen
Ívar Andersen
Höfundur er verslunarmaður.
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Topplistinn.

- G:\Carpenters 3

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband