Færsluflokkur: Bloggar

Barcelona með góð tök á Chelsea.

  Þrátt fyrir að ekki hafi verið skorað í leiknum, þá er ljóst að Barcelona hafði mikla yfirburði í þessum leik.  Nú verða þeir að sýna hvað í þeim býr þegar til Englands kemur og að sjálfsögðu verða menn að skora þar, því mark á útivelli gildir jú tvöfalt eins og menn vita.  Við segjum þvi bara "viva barqa!
mbl.is Barcelona og Chelsea skildu jöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð segir mistök að hafa aðskilið FME og Seðlabanka!

      En á hinn bóginn hafi það verið gert vegna þeirra leiða sem farnar voru í Bretlandi undir stjórn Gordon Browns árið 1999.  Við þetta urðu báðar stofnanirnar nánast áhrifalausar gagnvart bankaútþennslunni.  Hann segir að á þeim tíma hafi menn orðið að fylgja fordæmum Breta, enginn hafi getað áttað sig á því hvað myndi gerast löngu síðar í fjármálageiranum um allan heim! Þá segir Davíð í greininni að hann hefði viljað að enginn gæti átt meira í bönkunum en átta prósent hlut, en erfitt hafi verið að halda aftur af mönnum, og það fólk sem skammast mest út í Davíð, hafi verið sama fólkið og á sínum tíma taldi að það væri ógjörningur að setja takmörk á eignarhald í bönkum. 
mbl.is Davíð segist ætla að skrifa smásögur og planta trjám
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að sjálfsögðu.

   Ekki spurning, hann á skilið að fá medalíu drengurinn.  Hann er að skora mörkin á ögurstundum í leikjum liðsins og ekki spurning að Manchester United á titilinn vísan í vor með fulltingi þessarar nýju stjörnu í liðinu. 
mbl.is Fengi Macheda enga medalíu?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flokkur hentiseminnar.

   Já þeir eru ótrúlegir hjá VG, haga hlutunum eftir því sem forystan vill hverju sinni!  Í þessu dæmi hjá þeim þá hafna þeir fléttulistareglunni og fara eðlilega eftir úrslitunum að sjálfsögðu.  En fáránleikinn í þessu öllu er það hvernig þeir breyta reglunum sitt á hvað og það í hinum og þessum kjördæmunum eins og dæmin sýna.  Og þetta ætla íslenskir ríkisborgarar að kjósa yfir sig í næstu kosningum.  Þessa dagana hamast menn á að gagnrýna Sjálfstæðismenn fyrir ýmis vandamál sem komið hafa upp hjá þeim en ekki heyrist "múkk" frá fjölmiðlum um þá hringavitleysu sem í gangi er hjá VG í þessu sem öðru.  Hvenær skyldi nú þjóðin fara að átta sig á því að þegar hún vaknar loksins úr þeim martraðarsvefni sem hún hefur sofið við undanfarið, hvenær mun þá landslýður átta sig á að ekki tekur betra við með þeirri hentustefnu vinstri stjórn sem á eftir að tröllríða þjóðfélaginu á næstu misserum, munu þá landsmenn átta sig á að þeir hafa stigið úr öskunni og inn í ELDINN!
mbl.is Framboðslista VG í Suðurkjördæmi breytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flokkur í naflaskoðun!

   Er tími hreingerninga hjá Sjálfstæðisflokki runninn upp?  Ljóst er að nú verða menn að ganga hratt í að gera hreint fyrir sínum dyrum!  Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt allt sitt traust á svokkallað styrktarmannakerfi og haft mest af sínum tekjum í gegnum það kerfi, á meðan hinir flokkarnir (í fjórflokkakerfinu) hafa átt mestan sinn stuðning undir styrkjum frá ríkinu.  Nauðsynlegt er að traust flokksins gagnvart stuðningsaðilum sínum haldist óskert í þeim hremmingum sem flokkurinn gengur í gegnum þessa dagana.  Trúverðugleikinn helst ekki nema menn gangi hreint til verks og komi fram með allan sannleikann í málinu.  Greinilegt er að Formaður flokksinns ætlar að taka hart á þessu máli og gera út um þessi mál strax. 
mbl.is Þingflokkur fundar í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsókn með Alþingi í spennitreyju!

   Á Alþingi standa umræður yfir um stjórnarskrárbreytingar og greinilegt er að þar hafa Framsóknarmenn ráðin þar sem þeir krefjast stjórnlagaþings og hafa í þeirri umræðu stuðning frá minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna!  Málum er því þannig háttað núna, að þessi litli þingflokkur Framsóknar hefur sett Alþingi í spennitreyju með framsetningu um stjórnlagaþing.  Og Framsókn er ekki einu sinni í Ríkisstjórn.  Framsókn nær sínu fram með aðför sinni að stjórnarskránni án þess einu sinni að sitja í stjórn. 
mbl.is Spurst fyrir um sumarannir á Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

góður leikur, þrátt fyrir tap!

Ísland getur verið nokkuð sátt við þetta miðað við gang leiksins, munaði þó litlu að við næðum jafntefli.  Liðið getur örugglega gert enn betur næst, þá sérstaklega á heimavelli, allavega gerum við kröfu um að það sýni sitt besta.
mbl.is Naumur sigur Skota á Hampden, 2:1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er vitlaus "dagur" í dag?

     Greinilegt að Dagur B. er ekki alveg með á nótunum hjá Samfylkingu!  Hann virðist ekki átta sig  á að hann er í minnihlutastjórn með "kommunum".  Hvernig hann ætlar að koma ESB á dagskrá eftir kosningar skilur maður ekki, við vitum ekki betur en að  Vinstri Grænir séu alfarið á móti þeim gjörningi!  Dagur situr jú í borgarstjórn en hann er greinilega ekki vel upplýstur í landsmálapólitíkinni.  Kannski voru þetta bara illa ígrunduð ummæli sem þutu út í loftið í gegnum gleðitárin hjá Degi B.
mbl.is Dagur nýr varaformaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meiri eignaupptaka framundan hjá VG.

 Stefna VG er sú að í stað uppbyggingar eftir fjárhagshrunið í heiminum þá skal áfram haldið með eignaupptöku og nú meðal ALLRA  landsmanna og þá í framhaldinu skal skert enn meir fjárhagur heimilanna í landinu þegar til lengri tíma er litið.  Nú skal haldið úr öskunni í ELDINN!  Í því ástandi sem nú ríkir, þá vilja Vinstri Grænir ná þeim fáu aurum sem landsmenn reyna að halda í og líklega nota þá til að keyra upp samneysluna í þjóðfélaginu og styrkja gamla báknið sem menn hafa nú í áraraðir lagt mikið á sig til að vinna bug á.  Nú skal horft til fortíðar!!
mbl.is Komið að skuldadögunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gera sjálfa sig upp!

Einhvern tíma sagði ein ágætis manneskja að Ísland væri "stórasta" land í heimi, en ekki er það svo þegar koma á til þess að finna embættismenn til að ganga í að gera upp stórfyrirtæki á við Baug.  Leita þarf til lögmanna sem þekkja vel til í "bransanum" og helst hafa átt viðskipti sjálfir við fyrirtækið!  Svo virðist eiga við um í þessu tilviki, erfitt hefur greinilega verið að finna óháða aðila til að sinna verkefninu.  Nú spyr maður? Hvernig verður með önnur fyrirtæki sem eiga hugsanlega eftir að "rúlla yfir um", verður sami háttur hafður á?  Er það í raun svo að lögfræðistéttin sé svo fámenn og hafi svo litla þekkingu á svona málum almennt að það þurfi að leita til aðila sem hafa starfað náið með hinu gjaldþrota fyrirtæki, til að hægt sé að klára málið? Svo virðist sem það sé skortur á fólki með þekkingu á þessum málum!


mbl.is Víðtæk tengsl við Baug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ívar Andersen
Ívar Andersen
Höfundur er verslunarmaður.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Topplistinn.

- G:\Carpenters 3

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband