Flokkur hentiseminnar.

   Já þeir eru ótrúlegir hjá VG, haga hlutunum eftir því sem forystan vill hverju sinni!  Í þessu dæmi hjá þeim þá hafna þeir fléttulistareglunni og fara eðlilega eftir úrslitunum að sjálfsögðu.  En fáránleikinn í þessu öllu er það hvernig þeir breyta reglunum sitt á hvað og það í hinum og þessum kjördæmunum eins og dæmin sýna.  Og þetta ætla íslenskir ríkisborgarar að kjósa yfir sig í næstu kosningum.  Þessa dagana hamast menn á að gagnrýna Sjálfstæðismenn fyrir ýmis vandamál sem komið hafa upp hjá þeim en ekki heyrist "múkk" frá fjölmiðlum um þá hringavitleysu sem í gangi er hjá VG í þessu sem öðru.  Hvenær skyldi nú þjóðin fara að átta sig á því að þegar hún vaknar loksins úr þeim martraðarsvefni sem hún hefur sofið við undanfarið, hvenær mun þá landslýður átta sig á að ekki tekur betra við með þeirri hentustefnu vinstri stjórn sem á eftir að tröllríða þjóðfélaginu á næstu misserum, munu þá landsmenn átta sig á að þeir hafa stigið úr öskunni og inn í ELDINN!
mbl.is Framboðslista VG í Suðurkjördæmi breytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Ágæti Ívar. Ég skil vel pirringinn og ergelsið hjá þér. Loksins, loksins þegar landsmenn hafa fengið að sjá á spilin hjá íhaldinu þá kemur í ljós, að þeir hafa  ekkert annað en Jókera rétt eins og VG hafa ávallt haldið fram. 

Þorkell Sigurjónsson, 11.4.2009 kl. 16:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ívar Andersen
Ívar Andersen
Höfundur er verslunarmaður.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Topplistinn.

- G:\Carpenters 3

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband