Færsluflokkur: Bloggar

Kynning á skilmálunum sem Seðlabankinn lak út!!

Skyldi vera að þau myndu kynna skylmálana sem Seðlabankinn lak út til DV.  Það er án efa ekki hægt að skilja þetta öðruvísi, þar sem Seðlabankinn hefur greinilega viljað koma skilmálum IMF til alþýðunnar í landinu, og vara fólk við því í leiðinni að frekari þrengingar séu framundan í þjóðarbúskapnum, hækkun stýrivaxta og fl. og það virðist ætla að rætast sem hefur sagt áður, þ.e. ástandið verður eins og í Argentínu forðum, þegar þeir fóru með stýrivextina í 25%.  Þetta er Seðlabankinn að gefa í skyn með því að leka pappírunum um skilmálana út!
mbl.is Ráðherrar boða blaðamannafund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Palli hlær að Samkeppnisstofnun!

Og það skiljanlega, Samkeppnisstofnun er máttlaus, Það er sama hvað hún ályktar líkt og aðrar stofnanir þessa lands, allar falla þær (ályktanirnar)  um sjálfa sig!  Lítið sem ekkert er aðhafst í málum, enda lagaumhverfi þannig háttað að allir geta teygt og togið á lagaákvæðum sem fara á eftir.  Nú er líka tími lögfræðinganna að renna upp.  Nú er hátíð framundan hjá þeim, nóg að gera framundan í þeim "bransanum".  Hann Palli talar um einn aðila með yfirburðarstöðu á augl. markaði, og á þá við líklega stöð 2. og co.  Hann virðist ekki hugsa mikið til Skjás eins, sem fjöldi fólks þessa lands horfir til!  Sú stöð veitir "ókeypis" sjónvarpsefni til fólks, og á aukinni velgengni að fagna, og það á þessum tímum, þegar þrengir að í þjóðfélaginu.  Spurningin er hvort hann Palli sé ekki að styðja við 365. miðla með ummælum sínum...
mbl.is RÚV ekki brotið gegn samkeppnislögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fljótfærnisleg ummæli!

Obama biðst afsökunnar vegna ummæla um Nancy Reagan, ekki hefði hún hefði haldið miðilsfundi í Hvíta Húsinu.  Það kann hinsvegar að vera þörf á því núna að halda miðilsfundi þar, vegna þess ástands sem ríkir í fjármálum heimsins!  Menn þurfa kannski að leita ráða hjá þeim sem hafa lent í kreppum fyrr á tímum.


mbl.is Obama bað Nancy Reagan afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrítið.

Það fylgir ekki fréttinni, hvað hafi valdið þessari óvæntu hækkun! Yfirleitt eru menn með skýringar á reiðum höndum fyrir þeim breytingum sem verða á mörkuðum hverju sinni, en ekki núna? Hvað veldur?
mbl.is Bandarísk hlutabréf hækkuðu óvænt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einhvern tíma er allt fyrst!

Hvar annarsstaðar í veröldinni hefði IKEA getað átt von á þvi að þurfa að falla frá verðtryggingastefnu sinni.  Þegar Ísland á annars vegar í hlut, þá þarf ekkert að koma á óvart, ekki nokkurntímann einu sinni.  Allt getur gerst á litla Íslandi, það þekkjum við bara úr sögunni.  Við Íslendingar erum náttúrulega alveg einstök þjóð, við förum alltaf okkar eigin leiðir, við erum bara svona "léttgeggjuð" að eðlisfari. 


mbl.is IKEA hækkar verð um 25%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Evrópa er í umræðunni alla daga!

Það er rétt að það þarf að skoða málin rækilega hvað varðar Evrópusambandið, og engir hafa verið duglegri að því þó en Samfylkingin undanfarna mánuði!  Fjölmiðlar ( sem eru í eigu okkar vinsælu útrásarmanna) hafa líka verið uppfullir af því að segja frá ferðum Íslenskra embættismanna til annarra ESB landa, þar sem menn hafa verið að kanna grundvöll þess að ganga í Sambandið.  Svörin þar hafa þó verið frekar neikvæð hingað til, enda vill ESB  allt eða ekkert frá okkur.  Stóra málið er þó þetta, að ef við getum ekki komið okkar málum á hreint sjálf, þá getur það enginn, ekki heldur ESB.  Við munum án efa ekki komast þangað inn á næstunni, því við verðum fyrst að taka til heima hjá okkur sjálfum.  Ætlar ESB að aðstoða okkur með lánin sem við erum að taka?
mbl.is Tilbúin að endurskoða afstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er einmitt málið.

Það verður athyglisvert að fylgjast með mörkuðum erlendis næstu vikurnar, ef þetta gengur eftir að Demókratar sigra.  Það er sannkölluð veisla framundan fyrir Hagfræðinga af öllum gerðum að spá í hvernig málin þróast með sigri Demókrata.  Eflaust mun meirihluti þeirra hér á landi telja þetta verða til bóta fyrir hagkerfi heimsins, svo heyrist manni allavega af þeim flestum sem hafa haft sig í frammi hér í fjölmiðlum (og eru þeir ansi margir, sérstaklega í Háskólum þessa lands).  Lítið er hlustað á fjármálamenn þessa daganna, eða viðskiptamógúla af einu eða öðru taginu, því þeir virðast ekki vera mikið vinsælir í ljósi ástandsins hér þessa dagana.  Nú er tími hagfræðinganna runnin upp, Það er veisla hjá þeim!


mbl.is Murdoch: Sigur Obama gæti dýpkað fjármálakreppuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta fólk missir af Enska boltanum!

Og ekki bara fótboltanum, heldur líka landsleiknum í handbolta!  Nú er málið að slaka á og horfa á silfurhafanna okkar lumbra á Norsurum og sýna þeim að við getum bitið frá okkur á þessum krepputímum hér uppi á skerinu!


mbl.is Um þúsund mótmælendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver skaðar hvern?

Það er greinilegt að Utanríkisráðherra hefur miklar áhyggjur að orðspori Íslendinga á erlendri grundu.  Hún ætti að þekkja það, þar sem hún hefur verið mikið á "flakkinu" síðasta árið.  Ekki þekki ég það, enda lítið ferðast, bara horft á erlendu fréttarásirnar, sem ekki hafa átt neitt viðtal við Davíð að því er ég hef séð.  En þó átt viðtöl við ýmsa aðra héðan af "Los klakos" eins og einhver sagði! Það má þó segja að  Davíð sé vel virtur erlendis, enda verið lengi í pólitíkinni og örugglega gefið mörgum góð ráð vítt og breitt um veröldina.  En hvað með Bankastjórnina í Seðlabanka, þar sem Samfylking á nú sæti m.a.?


mbl.is Ingibjörg segir Davíð skaða orðsporið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Landinn" andar léttar!

Jæja, þá er jólunum bjargað, áfallið ekki eins mikið og við gátum búist við.
mbl.is Áfengi hækkar um 5,25%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ívar Andersen
Ívar Andersen
Höfundur er verslunarmaður.
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Topplistinn.

- G:\Carpenters 3

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband