Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál
31.12.2008 | 16:25
Samsuðu fyrirtækjarekstur.
Þetta getur gerst þegar menn eru að sýsla með mörg fyrirtæki í sama geiranum. Vodafone og Tal, þetta eru í raun sömu fyrirtækin að keppa við hvort annað, og sömu eigendur að stórum hluta. Ekki óeðlilegt að Teymi verji sína hagsmuni, þegar Tal forstjóri vill fara "hagkvæmari" leiðir í rekstri sínum á lággjaldafyrirtækinu Tal. Teymi vill náttúrulega verja Vodafone og eigendur þess skiljanlega. Hvað framtíðina varðar grunar mann nú að þetta verði allt sett aftur undir Vodafone og hringnum lokað! Nema menn slíti alveg tengslin við Vodafone risann.
Hlýtur að koma til skoðunar samkeppnisyfirvalda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.12.2008 | 14:30
Færri karlmenn fáklæddir!
Færri karlmenn eru fáklæddir en konum á myndum vefmiðlana, þetta gengur náttúrulega ekki og við karlmenn verðum að taka okkur saman í andlitinu og víðar og koma meira fram fáklæddir á netinu. Aðeins rúmt prósent samkv. mælingu í könnuninni. Og Þetta með karlmennina sem birtast oftast sem íþróttamenn, þessu þarf að breyta og karlmenn eiga náttúrulega að koma meira fram sem dægurstjörnur, þetta sýnir könnunin, og svo þurfum við fleiri kannanir af þessu tagi, t.d. taka líka hina mánuði ársins, því klæðnaðurinn breytist eftir árstímum, það gefur auga leið. Það þarf fleiri BA. ritgerðir af þessu tagi!
Hallað á konur í netmiðlum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.12.2008 | 22:49
Ef við komumst ekki út í heim, þá kemur heimurinn til okkar.
Loksins getum við uppfyllt drauma fólks allstaðar úr heiminum, með því að bjóða því hingað upp á "klakann" (sem reyndar bráðnar hratt). Fólk um allan heim hefur loksins efni á þvi sem það hefur alltaf dreymt um að skoða landið í fullum vetrarskrúða og njóta alls þess besta sem landið hefur upp á að bjóða, hvort sem um er að ræða veðráttuna, skammdegið, bjartsýni landanns eða hvað annað sem manni getur dottið í hug. Nú, eftir að við erum hætt að sækja aðra heim síðustu árin, þá getum við nú loks endurgoldið gestrisnina með því að bjóða öllum heiminum til okkar, allir eru velkomnir, því nóg er um gistirými út um allt.
Ísland á hálfvirði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.12.2008 | 14:26
JÓLADAGUR.
Þá er kominn jóladagur, það er hátíð í bæ. Loksins ríkir friður meðal manna að mestu leyti. Tími jólanna er sá tími þegar menn reyna að gleyma öllum erjum en reyna þess í stað að fagna komu frelsarans, þetta er sá tími þegar "landinn" streymir í kirkjur landsins til að öðlast frið og ró, fólk hópast í kirkjur sem aldrei áður til að "ná andanum". Met aðsókn er í kirkjur á þessum árstíma víðast hvar á landinu. Íslendingar sem eru nú ekki trúræknasta fólk almennt í heiminum, á þó góða stund í helgidómum þessa lands um jólin. Við reynum að gleyma öllu erli hversdagsins og söfnum kröftum til að geta tekið "slaginn" á nýju ári. Og svo vonum við að sjálfsögðu að nýja árið verði jafn fjörugt og það síðasta, því ekki viljum við hafa eintóma "gúrkutíð" í fjölmiðlum landsins á næsta ári, ekki svo að segja að nokkur von sé á því hvort sem er! En að lokum þetta: GLEÐILEG JÓL.
25.12.2008 | 01:32
Guðjón kominn af stað aftur.
Það eru spennandi tímar hjá Guðjóni framundan með þetta Crewe lið, maður mun fylgjast með gangi mála hjá honum, eins og svo oft áður. Hann kann að koma á óvart í öllu því sem hann tekur sér fyrir hendur á fótboltavellinum. Hann er án efa mjög umdeildur í sínu fagi, en hefur sýnt það að hann getur lyft grettistaki þegar þannig liggur á honum. Gamla liðið hans Stoke er nú í efstu deild, og þangað hefði það örugglega ekki náð án hans á sínum tíma. Alltaf gaman að sjá þegar menn taka að sér erfið verkefni og stundum nánast vonlaus, og sjá svo þessi verkefni komast í réttan farveg, við bíðum og sjáum hvað verður!
Guðjón Þórðarson: Hlakka til að takast á við þessa áskorun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.12.2008 | 23:43
Jafnaðarmenn leggjast í súpuna á degi skötunnar.
Kreppan er komin hjá Jafnaðarmönnum, þeir opna fyrsta súpueldhúsið á morgunn. Þorláksmessan er á morgun og þá verður víða boðið upp á skötuna góðu, en ungir jafnaðarmenn ætla að bjóða upp á súpu á þessum síðasta degi fyrir jól! Hefðu þeir ekki frekar átt að vekja athygli unga fólksins á skötunni, svona rétt fyrir jólin, svo geta þeir boðið upp á súpu eftir áramót, þá verður örugglega meiri þörf fyrir hana meðal jafnaðarmanna!
Súpa hjá jafnaðarmönnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.12.2008 | 22:52
Engar breytingar á Ráðherraliðinu.
Forsætisráðherra gerir ekki ráð fyrir neinum breytingum á Ráðherraliði sínu fyrir áramót og jafnvel ekki heldur fyrir Landsfund flokksins í næsta mánuði. Segja má að þetta séu kannski bestu fréttirnar þessa dagana. Maður var farinn að halda að breytingar væru óumflýjanlegar hjá flokknum, en það er sem sagt orðið ákveðið að vera ekki með hrókeringar í miðju kreppuástandi. Ekki veitir þó af að gera nokkrar breytingar á meðal Samfylkingarráðherra og má þar nefna helst Umhverfisráðherra, ekki skilur maður hvað sá Ráðherra hefur til málanna að leggja í þessu ástandi sem við göngum í gegnum þessa dagana.
Geir: Engar ráðherrabreytingar fyrirhugaðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.12.2008 | 14:40
Aðgerðir stórþjóðanna duga ekki.
IMF hvetur til meiri íhlutunnar Ríkisstjórna um allann heim! Spár eru greinilega ekki góðar fyrir næsta ár. Greinilegt að menn voru búnir að offjárfesta og þenja sig meir en markaðurinn þoldi fyrir löngu síðan og nú er að koma niður á hagkerfi heimsins. Ekki er auðvelt að fá mann til að trúa því að meiri innspýting frá Ríkistjórnum heimsins muni hjálpa í þessum efnum. Hvernig hagvöxtur mun aukast með hjálp Ríkisstjórna er erfitt að átta sig á, nema jú með lækkun skatta þá beinna og óbeinna, eitthvað í þá áttina verða menn að stefna til að auka tiltrú fólks á að það sjálft geti skapað eitthvað til að örva framleiðslu og aukið hagvöxt þar með. Þetta snýst jú alltaf um það eitt að hafa trú á hlutunum, hin leiðin er jú að leggjast með Ríkisvaldinu á bæn og vona að hjálpin berist að ofan!!
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.12.2008 | 10:45
Rök sett fram fyrir fresti á afnámi augl. á RÚV.
Ein af ástæðum frestunar sé sú að keppinautar Baugsmiðla á smásölumarkaði þurfi að leggja fram áætlanir um auglýsingar til fyrirtækisins, af því að ekki sé í nein önnur hús að venda þegar kemur að auglýsingum í sjónvarpi. Nokkuð er til í þessu, en reyndar ber þó á það að líta að Skjár einn er nú t.d. ekki hluti af Baugsmiðlum svo vitað sé! En greinilega þarf að vanda til þessa máls samt sem áður eins og Björn segir. Baugsmiðlar hafa það forskot að geta fylgst með hvað samkeppnisaðilar þeirra séu að setja fram hverju sinni í auglýsingum og brugðist þannig við með tilboðum á sínum "vörum" eða "þjónustu" á undan hinum aðilanum. Það er þvi kannski rétt að gefa menntamálanefnd Alþingis þennan frest fram til miðjan febrúar til að skoða málið betur, það er jú eins gott að hafa öll spilin uppi á borðinu við framsetningu nýrra reglna. Hitt er þó vert að minna á að slæmt er almennt að þurfa að setja reglur sem þessar fyrir þennan markað. Reglur eru oft þannig gerðar, að menn reyna oft að finna leiðir til að fara í kringum þær þegar fram líða stundir. Við verðum þó að vona að "frjálsir" ljósvakamiðlar eins og Skjár Einn fái að njóta sín áfram en verði ekki kæfðir af hinum stóru Regnhlíðarsamtökum 365.miðlum. Almenningur á kröfu á að boðið sé upp á ókeypis og opinn fjölmiðil eins og t.d. Skjá Einn, ÍNN og vonandi fl. í framtíðinni.
Björn: Baugsmiðlar og auglýsingamarkaðurinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.12.2008 | 17:52
Málið svæft í nefnd!
Svo virðist sem menn ætli að svæfa málið og tefja í nefndum þingsins. Talað um að gefa nefndinni frest fram eftir vetri. Margir hagsmunahópar þurfa að tjá sig um málið, ekki er von á góðu í þeim efnum, slæmt ef ekki er hægt að taka af skarið í þessum efnum og laga samkeppnisstöðuna á þessum markaði sem fyrst. RÚV fær ríflegar tekjur af nefskatti og ætti hann ásamt hefðbundnum framúrkeyrslum á fjárhag þess að vera nægt tilefni til að takmarka auglýsingar á þessum Ríkismiðli!
Áfram auglýsingar á RÚV | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar