Aðeins um fyrirvarana í samningum!

Verkalýðshreyfingin stendur nú í kjaraviðræðum og hægt gengur.  Það er nú orðin skoðun margra í dag að hún sé orðin veik og máttlaus í baráttumálum sínum.  En ef hún ætlar á annað borð að semja, (sem er sp. hvort vit sé í að gera yfir höfuð þessa dagana eins og málum er háttað í þjóðfélaginu í dag), þá getur varla verið nokkurt vit í að semja til langs tíma, vegna þess ástands sem uppi er hjá hinu opinbera. Þá á ég við að ekkert er á að treysta á þeim bænum hvað varðar kjarasamninga í haust sem þá hefjast hjá þeim, því það er ljóst að opinberi geirinn ætlar sér að bjarga málum, með ríflegum kjarabótum í haust þegar almennir kjarasamningar eru frágengnir.  Besti kosturinn á almenna markaðnum er að semja til styttri tíma, meðan ástandið er ótryggt hjá hinu opinbera!.  Hið opinbera ber líka mikla ábyrgð, og ekki nóg að hinn almenni markaður sé varkár, ef hið opinbera opnar svo allar flóðgáttir strax á eftir.  En ég vona þó  að verkalýðshreyfingin sé þó enn með lífsmarki og fylgist með þessum málum fyrir umbjóðendur sína og hafi nóg af fyrirvörum í samningum sínum gagnvart ríki og sveitarfélögum.
mbl.is Átelja ríkisstjórnina vegna kjaraviðræðna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Að átelja ríkisstjórnina fyrir að fallast ekki á tillögur Así er að sjá ekki mál í víðu samhengi.

Af hverju ætti ríkisstjórn Íslands að fallast á tillögur Así sem er aðeins ein af heildarstamtökum launamanna. Samningar sem þessir skipta alla máli og undarlegt ef ekki væri haft samráð við BSRB, BHMR, Kennarasamböndin og starfsmannasamtök sveitarfélaga.  Ef gera á samninga og grípa til ráðastafana eins og ASÍ lagði til þarf um það víðtækt samráð og samvinnu. ASÍ semur ekki fyrir alla.

Jón Ingi Cæsarsson, 30.1.2008 kl. 12:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ívar Andersen
Ívar Andersen
Höfundur er verslunarmaður.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Topplistinn.

- G:\Carpenters 3

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband