Þessi kann að græða á kreppunni!

   Já, hún er snjöll hún Eva, eða hvað hún heitir nú með réttu?  Hún er komin í sannkallaða útrás í miðri kreppunni og tekur að sér verkefni um allan heim!  þessi Norðmaður hefur lagst í sannkallaðan Víking.  Hún sankar að sér verkefnum sem aldrei fyrr, og ætlar sér að ráða við öll herlegheitin með einföldum hætti:  Með aðstoð fjölmiðla!  Hún virðist ætla að hafa nóg með að gera að halda fyrirlestra og koma fram í viðtölum við blaðamenn vítt og breitt um veröldina og ætlar sér að stunda kennslu í leiðinni og allt gerir hún þetta eins og að drekka vatn!!  Á meðan verðum við hér uppi á skerinu að bíða og bíða eftir að sjá eitthvað af verkum hennar verða að raunveruleika  í þeim eltingarleik sem hún ætlar að eiga við hina útrásarvikingana sem liggja nú á "baðströndum" með Romm og Tequilla.  Ég get séð fyrir mér myndina "CATCH ME IF YOU CAN", í þessu sambandi!  Athyglisvert verður að fylgjast  með hvar Evu ber næst niður í Aldingarðinum.  Nægar eru freistingarnar þessa dagana, og hún á erfitt með að hafna verkefnum og viðtölum, en það hefur nú ekkert með athyglissýki þó að gera!?
mbl.is Eva Joly: Botninum ekki náð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er eins og þú sért einn af útrásarvíkingunum og sért svolítið smeikur.

Eva Joly  er ekki í neinni rannsóknarvinnu hér.  Hún er saksóknara og dómsmálaráðherra til ráðgjafar.

Það er alger óþarfi að hnýta í hana eins og lögfræðingur með samviskubit.

Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 23.6.2009 kl. 22:03

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Mikið vorkenni ég þér Ívar að geta ekki skilið að sumir eru meira uppteknir af réttlæti en græðgi. þú skilur ekki að til sé réttlátt og græðgislaust fólk. Svona lýsir græðgissjúkdómurinn sér hjá þér. Vona að þú leitir þér hjálpar.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 23.6.2009 kl. 22:13

3 identicon

Mikið rosalega þarf að borga mikið fyrir réttlætiskendina

Eva komin á laun hjá Heilagri Jóhönnu á Íslandi, á þingi ESB í Belgíu  , hjá háskólanum í Trömsö Noregi

Það er því miður kominn svolítil útrásar og græðgislykt af þessu því svo er hún með fjölskyldu  í Frakklandi

ja hvur assskotinn

sæmundur (IP-tala skráð) 23.6.2009 kl. 22:18

4 identicon

Sæmundur. 

Hún er í það minnsta afkastameiri en íslenskir saksóknarar. 

Þeir ættu að leiða hugann að því hvernig farið er að því. 

Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 23.6.2009 kl. 22:20

5 identicon

Afkastamikil Jón? Hverju hefur hún afrekað síðan að hún kom fyrst til Íslands fyrir utan múgæsing. Ekki rassgat !! En þetta rassgat hefur líklega kostað tugi milljóna, fyrir hvað?? Hvað hefur hún gert?? Hún kemur hingað í nokkra daga í mánuði og fær 1,3 milljónir fyrir. Hún er á þreföldum launum!!

Kjartan (IP-tala skráð) 23.6.2009 kl. 22:37

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Sammála þér Ívar

Gunnar Th. Gunnarsson, 23.6.2009 kl. 22:53

7 identicon

Þið eruð eins og lögfræðingar með samviskubit. 

Það hefur aldrei staðið til að hún rannsakaði eitt né neitt. 

Hún á að veita saksóknara ráð og ef ekki er farið eftir þeim þá hefur hún ekkert hér að gera.  Það hefur hún sagt frá upphafi.

Þið skiljið ekki hennar hlutverk.  Það er einmitt fyrir málflutning eins og ykkar sem sumir menn vilja alls ekki að hún veiti nein ráð sem gætu upplýst svikamálini sem hafa sviðið landið undanfarna mánuði.

Þið stuðningsmenn útrásarvíkinga!!!

Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 23.6.2009 kl. 23:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ívar Andersen
Ívar Andersen
Höfundur er verslunarmaður.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Topplistinn.

- G:\Carpenters 3

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband