Færsluflokkur: Bloggar

Þessi kann að græða á kreppunni!

   Já, hún er snjöll hún Eva, eða hvað hún heitir nú með réttu?  Hún er komin í sannkallaða útrás í miðri kreppunni og tekur að sér verkefni um allan heim!  þessi Norðmaður hefur lagst í sannkallaðan Víking.  Hún sankar að sér verkefnum sem aldrei fyrr, og ætlar sér að ráða við öll herlegheitin með einföldum hætti:  Með aðstoð fjölmiðla!  Hún virðist ætla að hafa nóg með að gera að halda fyrirlestra og koma fram í viðtölum við blaðamenn vítt og breitt um veröldina og ætlar sér að stunda kennslu í leiðinni og allt gerir hún þetta eins og að drekka vatn!!  Á meðan verðum við hér uppi á skerinu að bíða og bíða eftir að sjá eitthvað af verkum hennar verða að raunveruleika  í þeim eltingarleik sem hún ætlar að eiga við hina útrásarvikingana sem liggja nú á "baðströndum" með Romm og Tequilla.  Ég get séð fyrir mér myndina "CATCH ME IF YOU CAN", í þessu sambandi!  Athyglisvert verður að fylgjast  með hvar Evu ber næst niður í Aldingarðinum.  Nægar eru freistingarnar þessa dagana, og hún á erfitt með að hafna verkefnum og viðtölum, en það hefur nú ekkert með athyglissýki þó að gera!?
mbl.is Eva Joly: Botninum ekki náð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott framtak!

   Ágæt hugmynd en ekki í fyrsta sinn sem svona er gert.  Sjálfstæðismenn hafa gert þetta áður en í öðrum tilgangi.  Gott að fólk sjái hvernig þessi mál geti þróast á næstunni  og geti séð það myndrænt.
mbl.is Icesave-skuldaklukka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað skal segja?1?

    Hann hefur nokkuið til sín máls!  Svo virðist sem Íslendingar séu að semja af sér í þessum samningjum.  Eitt er víst að formaður Framsóknar halar inn atkvæði með sínum síðustu ummælum.  Spennandi að fylgjjast með framvindu mála á næstunni...
mbl.is Miðstjórn Framsóknar: Þingmenn styðji ekki Icesave samninginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Utanaðkomandi: Jú! Gunnar I Birgis...

     Er það ekki besta lausnin í stöðunni? Er hann ekki að hætta í Kópavogi?  Alveg viss um að Nesbúar yrðu alveg í skýjunum með hann sem bæjarstjóra.  Nú er bara að taka upp símann og hafa samband við manninn!!  Annars er athyglisvert hversu miklar breytingar eru í gangi hjá sveitarfélögunum þessa dagana, menn vita varla sumstaðar ekki í hvaða flokki þeir eiga að vera s.b. ástandið í Grindavík sem dæmi.
mbl.is Bæjarstjórastólarnir bíða nýrra manna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG og Samfylking til ársins 2050!

   Þetta eru háleit markmið hjá Ríkisstjórninni.  Samstarfsyfirlýsing Ríkisstjórnar segir stefnt að minnkun á gróðurhúsaloftegundum um 50-75% fram til ársins 2050.  Nú vitum við náttúrulega ekki hvort þetta samstarf verði traust allan þennan tíma, en aldrei að vita nema svo verði, allavega miðast markmið þessara flokka á ákveðnum aðgerðum við að svo verði.  Margt á eftir að breytast í heiminum á þessum tíma og tæknin á eftir að þróast áfram, þannig að reglugerðir og markmið sem þessi verða kannski óþörf í framtíðinni.  Fyrirtæki og einstaklingar eru stöðugt að vinna í þessum málum um allan heim og kröfur fólksins verða alltaf meiri með tímanum.  Og ef drifkraftur einstaklinga fær að njóta sín án hlutskipta Ríkisins þá nást þessi markmið sjálfkrafa og fyrr.   
mbl.is Samdráttur um 52% mögulegur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fátt sem kemur á óvart í könnun.

   Þetta er það sem fólk hefur getað séð fyrir.  Fátt sem kemur á óvart í þessari könnun.  Greinilegt að verðmunur er mestur þar sem mest samkeppni er og lítill á öðrum vörum eins og mjólkurvörum. 
mbl.is Mikill verðmunur í verslunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kreppuáróður.

  Hvílíkt ástand sem er að verða hér á landi, nú á að hafa vit fyrir fólki hvað drykkjuvenjur varðar.  Þessi fréttaskýring sem einhliða fjallar um rökin fyrir þessum skatti er bersýnilega til þess gerð að réttlæta nýja skatta á almenning og vísun á aukin útgjöld heimila í landinu í formi hærra verðs og hærri verðbólgu með hækkun á neysluvísitölunni sem dæmi.  Athyglisvert  að í fréttaskýringu er enginn áhugi á að ræða við talsmenn framleiðenda þessara vara eða annarra sem starfa við framleiðslu eða sölu á þessum vörum, það er nú nefnilega svo að ýmsar aðrar vörur valda heilsubresti hjá fólki eins og til að mynda feitar kjötvörur og svo dettur mér nú eitt í hug, hvort ekki eigi að skattleggja ódýran skófatnað , því sumt fólk á það til að kaupa "ódýra" skó frekar en dýra og þar með oftast skó í lélegri gæðum sem  oft á tíðum veldur því að með tímanum fær fólk ýmsa kvilla í bakið og lappirnar vegna þess sem skófræðingar segja að sé vegna lélegs skófatnaðs!  Þetta væri náttúrulega eitthvað fyrir þessa stjórn landsins að athuga.  Dýrir vandaðir skór eru oftast hollari fyrir einstaklinga og sparar heilbrigðiskerfinu helling af pening.  Svona mætti lengi telja áfram og lengi finna fleiri rök fyrir auknar álögum á hinar ýmsu neysluvörur landans.  Íslensk alþýða getur lengi á sig þyrnum bætt!
mbl.is Hitaeiningasnautt gos sykurskattlagt?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðismenn leggja sínar tillögur fram!

   Samkvæmt þessari frétt virðast Sjálfstæðismenn tilbúnir með sínar tillögur í Efnahagsmálum, og forvitnilegt að fylgjast með á næstu dögum hvernig menn bregðast við.  Þetta virðast raunhæfar tillögur við fyrstu sýn og vonandi að menn líti á þær almennt með jákvæðum augum.  Ljóst er að Sjálfstæðismenn ætla ekki að liggja á liði sínu við að færa fram hugm. um endurreisn bankakerfisins og efnhag þjóðarinnar í heild!  Vonum svo að Alþingi geti nú komið sér saman um að vinna þessi mál áfram í sátt, því þau eru brýn og nú liggur á að allir leggist á eitt við að koma málum í réttan farveg.
mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn leggur fram efnahagstillögur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skiljanlegar áhyggjur.

  Það er skiljanlegt að fólk hafi áhyggjur af þessu máli.  Það lítur út fyrir að fólkið treysti ekki núverandi stjórnvöldum til að fara með þessi skuldamál þjóðarinnar.  Samningurinn sem lagður hefur verið fram á Alþingi er afspyrnuslakur og ljóst að fólk hugsar mikið um hvað á að gera á næstu misseruml.  Á fólk að  reyna að flýja þetta "sökkvandi skip" okkar eða á fólk að reyna að standa þetta af sér og vona að eftir 7. ár þá verði búið að breyta aftur þessum skuldum í eitthvað allt annað!!  Kannski jú ef núverandi stjórnvöld verða búin að semja okkur inn í ESB líka og þannig búið að koma hnútum þannig fyrir að við eigum engra kosta völ þegar við verðum endanlega hrokkin ofan í "kok" ESB báknsins.
mbl.is Hrekkur ekki fyrir skuldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ívar Andersen
Ívar Andersen
Höfundur er verslunarmaður.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Topplistinn.

- G:\Carpenters 3

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband