Færsluflokkur: Bloggar

Kosninga "flýtimeðferð".

   Greinilegt að reyna á að bæta upp á ýmindina hjá Samfylkingunni svona "korteri" fyrir kosningar.  Þau eru mörg málin ófrágengin hjá þeim eftir þetta kjörtímabil.  En nú á að keyra sem mest í gegn síðustu dagana á Alþingi.  En flest mála þar bíða endanlegra lausna og lagfæringa til handa næstu Ríkisstjórn sem tekur við.  
mbl.is Samningar um Helguvík í nánd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Opinberar gjaldahækkanir segir framkvæmdarstjórinn.

   Og þessum hækkunum hefur verið skellt á ítrekað síðustu misserin hjá þeim sem öðrum og allt fer þetta út í verðlagið og síðan í hækkun á lánum almennings sem síðan eykur verðbólgu og svo framvegis.  Við spyrjum: er ekki komið nóg ?  En þvi svarar fólk í lok april n.k. með atkvæði sínu í kosningum !
mbl.is Flugmiðar hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segir allt um það hvað þarf að gera fyrst strax eftir kosningar.

   Þetta er kannski besta mælingin á efnahagsástandinu hjá okkur.  Lækkun á tilgangslausum  sköttum og opinberum gjöldum kemur almenningi og fyrirtækjum alltaf til góða.
mbl.is Þjóðarréttur Íslendinga hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnarskrárfárið: Framsókn með eða á móti.

   Þetta er spurningin um að halda eða sleppa, virðast leika tveimur skjöldum í þessu máli, erfitt verður að átta sig á stöðunni hjá þeim með þetta í framhaldinu.  Athyglisvert að fylgjast með vinsældarkönnunum á næstunni.  
mbl.is Gerir ráð fyrir umræðum fram á nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Feluleikurinn í flugvallarmálinu.

  Sýnt er að í þessu máli er verið að reyna að þjarma að Reykjavíkurflugvelli í skjóli nætur eða rétt fyrir kosningar eins og í mörgum öðrum málum þessa dagana.  Samfylking nýtir sér stjórnarsamstarfið við VG til að koma sínu áhugamáli þ.e. að losa sig við flugvöllinn, í gegn og aðstoða samherja sína í borginni í leiðinni.  Það er ótrúlegt hvað menn leggjast lágt í þessu máli svona "korteri" fyrir kosningar.  Svo virðist sem menn sjáí að þetta stjórnarsamstarf komi ekki til að standa mikið lengur og því er lagst í herferð sem felst í því að koma sem flestum "undirskriftum" í gegn á sem stystum tíma til að tryggja að öll loforð fráfarandi stjórna séu innsigluð á sem flestum stöðum og í sem flestum málum !  En "REIKNINGURINN" hann bíður betri tíma og er færður til bókar einhverntima seinna, svona ( Bjarnargreiði) til handa næstu valdhöfum þessa ágæta lands okkar.  En hvað varðar þessa hugmynd með Hólmsheiðina, þá er hún brandari sem eingöngu gæti þrifist sem hugm. frá fólki sem aldrei fylgist með veðurfréttum eða öðru sem því tengist.  Það er aðeins ein lausn og hún er að völlurinn fái frið eða Keflavík taki við "keflinu", en við vitum nú vel hvað Þjóðin vill í því sambandi.
mbl.is Samkomulagið er ekki í höfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ábyrgð fráfarandi stjórnarflokka mikil í þessu öllu .

   Auknar skattaálögur auka líka á verðbólguna eins og t.d. hin öfgafulla ákvörðun að setja á sykurskatt sem eingöngu eykur á skuldir heimilanna og hækkar öll lán, annar ávinningur verður enginn af þessu sem öðru.  Verðbólgubálið hefur verið kveikt og það verðu eingöngu slökkt með sterkri hægri stjórn, þar sem fólk tekur ákvarðanir með heimilin í landinu til hliðsjónar og allir aðilar koma að borðinu en ekki bara þröngir hópar sem hafa það eitt að markmiði að komast sem oftast úr landi á hverju ári á kostnað Ríkisins til að sinna pappírsvinnu einhverstaðar innan ríkja Evrópusambandsins ásamt því að versla inn í leiðinni og taka "tollinn" sinn við heimkomu í Fríhöfninni. Reynum nú einu sinni að líta okkur nær á næstu misserum, það er af nógu að taka í málum hér innanlands.
mbl.is „Verðbólguskriða hófst í ráðuneytinu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allri ábyrgð fleygt á næstu Ríkisstjórn.

   Frumvarp sem á að samþykkja fyrir kosningar og "tékkinn" fellur á næstu stjórn landsins.  Framkvæmdin í þessu máli er eins og í öllum öðrum málum þessarar stjórnar þ.e. hvert útgjaldafrumvarpið samþykkt af öðru en ábyrgðinni og öllum útgjöldum varpað á næsta kjörtímabil.  Allt óábyrgt og siðlaust.  Menn ekkert lært af hruninu og hægt og bítandi sogast efnahagslífið sömu leið og það Gríska, vandamálunum frestað þangað til annað hrun verður með einum eða öðrum hætti.  Erum einmitt að sjá þessa dagana "kreppuverðbólguna" aukast hægt og bítandi.
mbl.is LÌN-frumvarp mun kosta 2 milljarða á ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrsta hreina vinstristjórn Steingríms J. "hökktir" á síðustu metrunum.

 Eins og allir muna þá sagðist Steingrímur J. myndi fórna öllu fyrir því að fyrsta hreina vinstristjórn Íslands  sem myndi ná að þrauka heilt kjörtímabil, og hann hefur heldur betur selt sig dýrt.  En skondið yrði það nú ef allir mótorarnir gæfu sig nú korteri fyrir kosningar.  Hann virðist ætla að reyna að komast þetta á gufunum, en það getur verið æði dýrt að selja sig í sögubækurnar og stundum dugar það ekki einu sinni til !  
mbl.is Líf ríkisstjórnar hangir á bláþræði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ívar Andersen
Ívar Andersen
Höfundur er verslunarmaður.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Topplistinn.

- G:\Carpenters 3

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband