Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
1.11.2008 | 17:20
Þetta er einmitt málið.
Það verður athyglisvert að fylgjast með mörkuðum erlendis næstu vikurnar, ef þetta gengur eftir að Demókratar sigra. Það er sannkölluð veisla framundan fyrir Hagfræðinga af öllum gerðum að spá í hvernig málin þróast með sigri Demókrata. Eflaust mun meirihluti þeirra hér á landi telja þetta verða til bóta fyrir hagkerfi heimsins, svo heyrist manni allavega af þeim flestum sem hafa haft sig í frammi hér í fjölmiðlum (og eru þeir ansi margir, sérstaklega í Háskólum þessa lands). Lítið er hlustað á fjármálamenn þessa daganna, eða viðskiptamógúla af einu eða öðru taginu, því þeir virðast ekki vera mikið vinsælir í ljósi ástandsins hér þessa dagana. Nú er tími hagfræðinganna runnin upp, Það er veisla hjá þeim!
![]() |
Murdoch: Sigur Obama gæti dýpkað fjármálakreppuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.11.2008 | 14:47
Þetta fólk missir af Enska boltanum!
Og ekki bara fótboltanum, heldur líka landsleiknum í handbolta! Nú er málið að slaka á og horfa á silfurhafanna okkar lumbra á Norsurum og sýna þeim að við getum bitið frá okkur á þessum krepputímum hér uppi á skerinu!
![]() |
Um þúsund mótmælendur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.11.2008 | 10:29
Hver skaðar hvern?
Það er greinilegt að Utanríkisráðherra hefur miklar áhyggjur að orðspori Íslendinga á erlendri grundu. Hún ætti að þekkja það, þar sem hún hefur verið mikið á "flakkinu" síðasta árið. Ekki þekki ég það, enda lítið ferðast, bara horft á erlendu fréttarásirnar, sem ekki hafa átt neitt viðtal við Davíð að því er ég hef séð. En þó átt viðtöl við ýmsa aðra héðan af "Los klakos" eins og einhver sagði! Það má þó segja að Davíð sé vel virtur erlendis, enda verið lengi í pólitíkinni og örugglega gefið mörgum góð ráð vítt og breitt um veröldina. En hvað með Bankastjórnina í Seðlabanka, þar sem Samfylking á nú sæti m.a.?
![]() |
Ingibjörg segir Davíð skaða orðsporið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.10.2008 | 10:39
Og það sama verður uppi á teningnum fyrir Október.
![]() |
Vöruskipti hagstæð í september |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.10.2008 | 23:39
Skjár einn leitar eftir stuðningi almennings.
![]() |
Verið að segja 45 starfsmönnum upp á Skjá einum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.10.2008 | 10:20
snúið mál!
![]() |
Álíta sig hæfa til að rannsaka syni sína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.10.2008 | 07:05
Ekki vanþörf á að komast til botns í málinu.
Það hlýtur að vera forgangsmál að vita þetta með séreignarsparnað fólks, tugir þúsunda landsmanna eiga í þessum sjóðum og fólk vill fá það á hreint sem fyrst, hvernig mál standa með þessa sjóði, almennt hefur fólk ekki fylgst með þessum sjóðum frá degi til dags, þannig að án efa vill fólk fá það á hreint hvort þessir sjóðir séu öruggir eins og forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar töluðu um vin hrun bankanna! Ekki vill fólk vera að greiða í þessa sjóði ef greiðslunum er svo bara "beint sturtað niður".
![]() |
Sjóðir fá fjölda fyrirspurna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.10.2008 | 15:12
Og bæta stjórnarkreppu við fjármálakreppuna!?!
Ekki lausn á vandanum!
![]() |
Safna undirskriftum vegna kröfu um kosningar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.10.2008 | 14:59
Reynt að sauma að Seðlabankastjóra.
Stýrivextir hækkuðu í 18% í dag. Fjölmiðlamenn mættu í Seðlabankann til að hlýða á útskýringar Davíðs fyrir hönd Bankastjórnar á ástæðum fyrir þessari hækkun. Í lok fundar reyndu fjölmiðlamenn að sauma að Davíð, hvað varðaði stöðu hans í bankanum! Ekki er fjallað um þær rökræður á netmiðlunum, en mér skilst að þar hafi verið spurt eitthvað á þá leið hvort hann hefði fengið uppsagnarbréf, en hann svaraði á móti að því er mér skilst (haft eftir öðrum sem hlustaði á blaðamannafundinn) hvort blaðamaður sjálfur, væri búinn að fá uppsagnarbréf! En að öllu gamni slepptu, þá er náttúrulega ekki rétti tíminn núna fyrir menn að vera að kasta "steinum" í allar áttir, menn verða að fá frið til að vinna úr þeim vanda sem nú steðjar að, hitt kemur síðar!!
![]() |
Vaxtahækkun vegna IMF |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.10.2008 | 14:34
Orð Árna P.
"Við hefðum hingað til viljað trúa því að sá tími að stór ríki í Evrópu misbeittu stærð sinni og aðstöðu til að kúga minni nágrannaríki, við hefðum viljað trúa því að sá tími væri liðinn!" segir Árni Páll. Ágreininginn hefði átt að fela Evrópudómstólnum til að leysa úr. Því var HAFNAÐ af Evrópusambandinu. Þetta segir maðurinn sem trúir því statt og stöðugt að við hefðum verið betur stödd í Sambandi Evrópuþjóða? En þarna lýsir hann sjálfur eðli Sambandsins í hnotskurn! Stærri ríki Sambandisins traðka einmitt á smærri ríkjunum og þannig verður það einmitt þegar óskum kratanna og fleirri verða uppfylltar hvað varðar inngöngu okkar inn í Sambandið. Við verðum áfram "peðin" í Sambandinu sem menn verða tilbúnir að fórna fyrst og traðka á þegar á reynir.
![]() |
Eru nú fyrst að átta sig á alvarleika málsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.9.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar