Vill hún afnema þessa "þjóðaríþrótt" okkar Íslendinga ?

   Þeir hafa verið æði margir þessir flakkarar okkar, sjálfur hefur maður þó ekki notið þess "heiður" að komast í þennan flokk manna sem stundað hafa þetta með sín fyrirtæki og félög.  Gaman verður að fylgjast með framgangi þessa máls, þ.e. ef það endar ekki svo bara ofan í skúffu Ráðuneytisins þegar fram líða stundir eins og mörg önnur þjóðþrifamál í gegnum tíðina.  En athyglisvert ef árangur næst.  Líklega myndu námskrár "viðskipta og lögfræðinemanna" í Háskólunum þurfa eitthvað að taka breytingum ef hætta á að kenna mönnum hvernig á að skipta um kennitölur eftir að í þrot er komið með hin og þessi fyrirtækin sem allt líf hefur verið "murkað" úr.   
mbl.is Ráðast gegn kennitöluflakki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölmiðlar áhugalitlir um þetta "kúgaðasta" land heims !

   Öll orka fjölmiðla hefur alltaf farið í að fylgjast með beinum átökum hér og þar um heiminn, enda áhugi fólks ótrúlega mikill í slíkum málum.  Á meðan fá sumir einræðisherrar frelsi til að murka allt líf eða frjálsa hugsun úr höfði fólks í fjölmörgum ríkjum þar sem gætt er vel að því að miðlar allskonar fá ekki að ná fótfestu.  
mbl.is Lét taka fyrrverandi unnustu sína af lífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eyðileggingin á "Breiðstræti" Vesturbæjar.

    Ekki að ástæðulausu sem mikill hiti var í íbúum Vesturbæjar vegna þessara breytinga sem gerðar voru á Hofsvallagötunni.  Illa hugsað og ígrunduð hugmynd frá upphafi og embættismönnum borgarinnar til lítils að hrósa fyrir.  Um Hofsvallagötu fara um 10.000. þúsund bílar á dag og beint liggur við að tálmar myndast reglulega í vetur vegna þessa, þó munu margir finna sér aðrar leiðir í gegnum hverfin til að forðast skipulagsslysið á Hofsvallagötu öðrum íbúum til mikilla ama þar sem við á!  Forvitnilegt var að heyra samgöngustjóra segja að Hjólreiðamenn væru að koma sterkt inn á þessari götu m.a. En ekki hefur maður sjálfur rekist mikið á það hingað til, því þeir halda sig á stéttum sér til meira öryggis.  Athyglisvert er hve Samgöngustj. gerir lítið úr áhyggjum af bílum sem beygja til vinstri á Hringbraut af Hofsvallagötu í Norður, en þeir munu örugglega tefja umferð Norður Hofsvallagötu.  Á síðustu tveimur áratugum hafa orðið um 100 óhöpp og þó aðeins 1. banaslys. Auðvitað er 1 of mikið en á þessum tíma hlýtur þetta teljast vel sloppið á þessari góðu breiðgötu okkar Vesturbæinga, því það er nefnilega svo að fólk hefur MJÖG góða yfirsýn yfir fólk og farartæki þegar ekið er um þessa Breiðgötu.  En þetta allt vilja menn eyðileggja til þess eins að skapa einhverskonar "umhverfislistaverk" fyrir minnihluta sem á að geta ferðast þar um í friði fyrir ógnandi ökutækjum.  Öll þessi breyting á gatnakerfi Vesturbæjar hvort sem um er að ræða Hofsvallagatan eða hinar mjög svo undarlegu ferhyndru vegatálmar (þar sem margir skjóta sér á milli á minni bílum) og breytingin á ljósunum við Þjóðminjasafnið sem skapað hefur ómældar tafir á morgnana og síðdegis virka daga ( eftir að gönguljósin voru færð nær hringtorginu við Suðurgötu ) sýnir að Borgin er ekki að sinna sýnum skyldum gagnvart útsvarsgreiðendum sínum almennt , heldur eyða þeir góðum tíma skattborgara sinna í "dekurverkefni" sem eingöngu skila litlu til Borgaranna nema þá auknum kostnaði, álagi, streitu, og dýrmætum tíma almennnings í að koma sér og sínum frá einum stað til þess næsta í Borginni.  Því miður verða hinir "listrænu" stjórnendur Borgarinnar að átta sig á þvi að fólk segir að lokum STOPP !!  Hingað og ekki lengra.  Hafið samráð og kynnið betur áður en framkvæmt er.  Fólk verður að vera starfi sínu vaxið við stjórn á þessum svokölluðu "Stofum" Borgarinnar.  En við erum þó farin að telja niður fyrir næstu Borgarstjórnarkosningar á næsta ári.  Kannski er það besta EKKI best !!!
mbl.is Hitafundur um Hofsvallagötuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kostnaðarsamt "skipulagsklúður".

   Þessi breyting kemur auðvitað eftir einhvern hugarflugs fund eins og menn kalla ýmsa fundi í dag, þar sem eitthvað er ákveðið og látið svo slag standa án nokkurra umræðna og kynninga fyrir fólki, þar sem auðséð hefur verið að það yrði mikið fár um slíkt hvort eð er. Þetta sýnir að vanhæfnin til ákvarðanna innan borgarinnar er algjör orðin. Aðhald borgarfulltúanna er máttlaust virðist vera í þessum efnum sem öðru. 
mbl.is Næstum hver einasti skrifar undir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf þá ekki líka að hafa túlk til að túlka "mállískuna" hjá honum ?

   Ferguson er án efa farsælasti þjálfari í gegnum tíðina þarna á Englandi, en maður þarf nú alltaf að hafa sig allan við að skilja það sem hann segir oft á tíðum og athyglisvert að slegist skuli um hann til að fjalla um boltann í sjónvarpi.  Skoska mállískan hjá honum er nú ekki fyrir alla að skilja, en vonum að hann verði farsæll þarna sem annarstaðar.
mbl.is Sjónvarpsstöðvarnar berjast um Ferguson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Skriffinar" Ríkisins með reglur ESB á heilanum !

   Allt frá henni Ameríku er litið hornauga núorðið !  Búið að innleiða þvílíkt bákn af reglum sem varða heilsu fólks að nú þurfa allar vörur að fara í gegnum vottun frá Evrópu til að komast á markað.  Nú sér maður líka að "Viðskiptamenn" um allan heim eru að spila inn á þetta og viðskiptablokkir í ESB eru til þar sem fáir en stórir "merkja" risar ráða völdum á fjöldanum af vöruflokkum og þrýsta svo á og gæta þess að aðrir komist ekki að kjötkötlunum þeirra og nota Báknið í Brussel og víðar til að hjálpa sér við að ýta Amerískum vörum af markaði.  VIð hljótum að spyrja: Er það þetta sem við viljum í framtíðinni þ.e. að vörum sé "skammtað (sérvalið) ofan í okkur ?  Já , eða eins og segir einhverstaðar:  FRELSIÐ ER YNDISLEGT !! eða var það kannski bara LÍFIÐ eingöngu ?!?
mbl.is „Þetta er algjört einelti“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mínir menn gjörsamlega úti á túni í þessum leik !

   Og ekki hægt að segja að þeir hafi verið með í þessum leik.  Arfa slakur leikur  hjá KR.   Hannes Þór stóð upp úr þessu öllu og var maður leiksins að mínu mati þrátt fyrir tap, því KR var meira en lítið heppið að sleppa af "gervigrasinu" með eins marks tap.  Stjarnan er með gervigrasið sitt innstimplað greinilega í leikstíl sínum og nota það óspart vel. Svolítið slæmt líka þegar áhugaleysið nær alla leið á "bekkinn" eins og manni sýndist í Sjónvarpi oft á tíðum í gær.  En nú er það bara deildin og menn verða að "girða í brók" o.s.frv...
mbl.is Halti maðurinn hetjan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrsta og "síðasta" heimsóknin líklega !

   Líklega verður þessum seint boðið í heimsóknir til annarra þjóðhöfðingja, ekki á neitt að treysta með uppátæki hans !  Nokkuð skondið að sjá þetta uppátæki hans.  
mbl.is „Ég ætla að setjast við skrifborð forseta Bandaríkjanna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rétti "andinn" á staðnum greinilega !

   Bjartsýnin braust þarna fram hjá þeim félögum í viðræðum um stjórnarmyndunina,  80´s stemmingin sveif yfir vötnunum enda frábær áratugur hjá flestum sem upplifðu þá tíma !  Gefur kannski von um góðan málefnasamning í framhaldinu...
mbl.is Báðu Sigga Hlö um Wild Boys
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki nokkur "smuga" að mbl.is verði lokað nokkurn tíma.

   En þeim sem hafa verið í smugunni er bent á aðra góða miðla á netinu eins og t.d. Vefþjóðviljann.
mbl.is Smugunni lokað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ívar Andersen
Ívar Andersen
Höfundur er verslunarmaður.
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Topplistinn.

- G:\Carpenters 3

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband