Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Wall Street Journal.

   Hannes Hólmsteinn tjáir sig á vef Wall Street Journal.  Hann segir þar að láni frá IMF. hafi verið þröngvað upp á okkur af kröfu IMF og Evrópusambandsins, eftir að bankarnir hrundu hér í Október,  til að við gætum uppfyllt greiðslukröfur frá erlendum innlánseigendum og þannig steypt Íslenskum borgurum í stórskuldir.  Í rauninni er Hannes bara að lýsa þróun mála hér á landi  fyrir erlendum lesendum blaðsins.  Það er nú ekki svo slæmt að einvher taki að sér að útskýra málin fyrir umheiminum, okkur veitir nú ekki af að reyna rétta stöðu okkar á alþjóðavísu og koma hlutunum rétt til skila hvað varðar útskýringar á hruninu mikla sem hér varð.  Ekki laust við að maður sjái léttan húmor að hætti Hannesar bregða við í þessari grein!
mbl.is Hannes Hólmsteinn: Óvinir Davíðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna segir "skák".

   Nú er boltinn hjá Seðlabankastjórum.   Spurning hvaða varnarleik bankastjórar leika, segja þeir skák  líka eða gefa þeir leikinn?  Það virðist þó verða erfitt fyrir Jóhönnu að segja skák og mát, því það mun án efa verða kostnaðarsamt fyrir frúna í forsætisráðuneytinu.  En ekki verður það nú svo sem áhyggjuefni forsætisráðherrans enda alvön því að fórna miklum fjármunum úr Ríkiskassanum og fer létt með.
mbl.is Seðlabankastjórar víki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú skal tekið til hendinni...

   Nú rignir inn ábendingum, kærum og fyrirspurnum til þessa nýja saksóknara sem á að rannsaka hvað varð af öllum aurum landsmanna.  Eins gott að hinn nýja rannsóknarstofnum standi nú undir nafni og verði eitthvað ágengt í þessum efnum, því allt hefur "klikkað" hingað til.   Við vonum að "inspector clouso" og hans menn nái skjótum og góðum árangri í að fletta ofan af öllu útrásargenginu og endurheimta eitthvað af því "góssi " sem horfið hefur úr innviðum banka og fyrirtækja á undanförnum misserum.  Og í kjölfarið munu síðan sökudólgarnir fá sín maklegu málagjöld í hinu illræmda íslenska dómskerfi í kjölfarið...
mbl.is Bankahrunsmál til sérstaks saksóknara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byltingarstjórnin vekur athygli!

   Það er eðlilegt að þessi nýja stjórn veki athygli um allan heim og ekki síst í Kína, enda sjá menn þar nýja bandamenn í pólitíkinni, og kannski veitir ekki bara af fyrir okkur, þar sem við erum búin að missa þá flesta hér á Vesturlöndum!!!
mbl.is Stjórnarskiptin vekja athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er maðurinn?

   Nú spyrja margir sem lesa þessa frétt: Hver er maðurinn?  Þessi maður fór bara alveg framhjá manni í hinni pólitísku umræðu síðustu misserin!  Nú birtist hann allt í einu eins og "týndi sonurinn" hjá Samfylkingunni og er dúkkaður upp sem Forseti Alþingis!!  Greinilegt að það á að ýta honum fram í sviðsljósið, annað dugar ekki þar sem hann sjálfur lítið viljað láta á sér bera síðan hann komst á þing.  Nú verður hann í "mynd" alla daga meðan þingið situr og ekki efast maður um að hann mun láta til sín taka í málum af ýmsu tagi!  Það er nú reyndar svo að embætti Þingforseta hefur yfirleitt verið falið mönnum sem er á leiðinni að hætta á þingi og yfirleitt þeim elstu sem þar starfa og því veltir maður fyrir sér afhverju Samfylking valdi ekki Ellert B. schram í embættið?

Hver er maðurinn?

   Nú spyrja margir sem lesa þessa frétt: Hver er maðurinn?  Þessi maður fór bara alveg framhjá manni í hinni pólitísku umræðu síðustu misserin!  Nú birtist hann allt í einu eins og "týndi sonurinn" hjá Samfylkingunni og er dúkkaður upp sem Forseti Alþingis!!  Greinilegt að það á að ýta honum fram í sviðsljósið, annað dugar ekki þar sem hann sjálfur lítið viljað láta á sér bera síðan hann komst á þing.  Nú verður hann í "mynd" alla daga meðan þingið situr og ekki efast maður um að hann mun láta til sín taka í málum af ýmsu tagi!  Það er nú reyndar svo að embætti Þingforseta hefur yfirleitt verið falið mönnum sem er á leiðinni að hætta á þingi og yfirleitt þeim elstu sem þar starfa og því veltir maður fyrir sér afhverju Samfylking valdi ekki Ellert B. schram í embættið?
mbl.is Guðbjartur verður forseti Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr Ráðherra Bankamála.

   Þá er hin nýja byltingarstjórn búin að ákveða með Ráðherraembætti sín.  Enginn fannst innan flokkanna til að fara með mál bankanna og fjármálaeftirlitsins.  Leita þurfti til Háskóla íslands til að fylla upp í Ráðherrakvótann.  Mun hin nýja stjórn leita eftir "akademískum" lausnum á þeim vanda sem að þjóðinni steðjar.  Líklega verður hinum nýja Viðskiptaráðherra gert að gera hinum sitjandi bankastjórum í Seðlabankanum eins lífið leitt og hægt er, og kannski með aðstoð hins nýja Dómsmálaráðherra sér til halds og trausts!  Samfylking og VG. munu samkv. frétt stöðvar 2. ætla að kynna hina nýju stjórn á Austurvelli þar sem byltingarsinnar stóðu áður og ausuðu svívirðingum yfir landsfeðurna.  Nú mun Samfylkingin standa þar og taka við heillaóskum frá hinum sömu aðilum...
mbl.is Gylfi tók ráðherraboði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá er það á hreinu.

  Það er ljóst að stýrivextir verða áfram óbreyttir, öllum til mikillar gleði.  Áfram er haldið með að uppfylla óskir IMF.  Auðvitað hefðu allir viljað sjá lækkun stýrivaxta, en fyrst farið var í það að fylgja IMF í einu og öllu þá verðum við bara að vona að útkoman að lokum verði okkur hagstæð.  Nú er spurningin  hvort þetta sé síðasta ákvörðun núverandi banakstjóra eða hvort hin nýja Ríkisstjórn láti af því að koma honum Davíð og félögum úr bankanum.
mbl.is Óbreyttir stýrivextir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnarskipti á föstudag!

  Nú virðist sem talað sé um að stjórnarskiptin fari fram á föstudaginn.  Talað um að Jóhanna verði Forsætisráðherra og athyglisvert er að það eina sem um er rætt í fjölmiðlum um hana er það merkilega atriði að hún er kvenmaður og það samkynhneygður, allt annað virðist aukaatriði í umræðunni um Forsætisráðherraembættið.  Hvað hún fái áorkað í embættinu virðist lítið áhugavert, miðað við það sem maður les og heyrir í miðlum.  En greinilegt er að stjórnarmynduninn ætlar að taka sinn tíma og allavega getum við andað "létt" á meðan EKKERT gerist!!

Er toppinum náð?

  Nú er spurningin hvort að toppi sé náð í hækkanaferlinu almennt?  Verðbólgan er komin í yfir 18%.  Athyglisvert er hve mikið grænmeti hefur hækkað, en gengið hefur haft mikil áhrif á verð innfluttra vara síðustu mánuði.  Nú verður við að bíða og sjá hvort verðbólga fari lækkandi næstu mánuðina eins og menn gera ráð fyrir eða hvort hún heldur áfram upp á við, þetta verður nú í höndum nýrrar Ríkisstjórnar að stýra þessu í "rétta átt".  Óttast margir að verðbólgan geti haldið áfram að magnast ef ný stjórn tekur ekki málin "föstum" tökum, tíminn er stuttur og málið þolir enga bið, en maður óttast óneitanlega hið versta næstu mánuði.

 


mbl.is Verðbólgan 18,6%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ívar Andersen
Ívar Andersen
Höfundur er verslunarmaður.
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.8.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Topplistinn.

- G:\Carpenters 3

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband